Átján ára ákærður fyrir tvær grófar líkamsárásir Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 29. júní 2015 16:47 Ákæran á hendur piltinum átján ára er í fjórum liðum auk einkaréttakrafa um miskabætur. Vísir/Hari
Átján ára piltur hefur verið ákærður af ríkissaksóknara fyrir tvær sérstaklega hættulegar líkamsárásir. Þá er honum einnig gefið að sök að hafa kýlt sextán ára stúlku með krepptum hnefa í andlitið. Hann var sjálfur sautján ára þegar árásin átti sér stað. Önnur sérstaklega hættulega líkamsárásin var fyrir utan skemmtistaðinn Kaffi Amor við Strandgötu á Akureyri um Verslunarmannahelgina í ágúst 2014. Þar er hann sakaður um að hafa ráðist á 22 ára karlmann, slegið með krepptum hnefa í andlitið í tvígang og sparkað af miklu afli í höfuð hans. Afleiðingar árásarinnar voru þær að maðurinn hlaut þriggja sm langan skurð á hvirfli sem sauma þurfti saman.Réðust tveir á einn Hin sérstaklega hættulega líkamsárásin átti sér stað við Baldursgötu í Reykjavík sléttum tveimur vikum síðar en þá var ákærði í félagi við annan pilt, tveimur árum yngri. Eru þeir sakaðir um að hafa ráðist á sautján ára pilt með því að slá hann með krepptum hnefa í andlitið og sparkað báðir ítrekað í höfuð hans þar sem hann lá á götunni. Pilturinn hlaut aflögun á nefi, brotna framtönn, mar á eyra og eymsli yfir kinnbeinum. Í einkaréttarkröfu er krafist tæplega 5,6 milljóna króna í miskabætur vegna árásarinnar.Kýldu stúlku Þá er átján ára pilturinn einnig ákærður fyrir að hafa kýlt stúlku árinu yngri með krepptum hnefa í gleðskap í Reykjavík í nóvember 2013. Féll hún niður stiga með þeim afleiðingum að hún hlaut skurð á vinstri augabrún sem þurfti að sauma saman. Þá fékk hún mar á augnlok og augnsvæði og sömuleiðis mar á læri. Farið er fram á rúma hálfa milljón króna í miskabætur. Að lokum er pilturinn ákærður fyrir að hafa ýtt við lögreglumanni í kyrrstæðum strætisvagni við Hringbraut í fyrrasumar. Ýtti hann með báðum höndum í búk lögreglumannsins þegar lögregla hafði afskipti af piltinum í vagninum.
Mest lesið Hvað er vitað um manndrápið á Kársnesi? Innlent Nokkrir handteknir vegna mannsláts Innlent Óttast að stefni í kreppuverðbólgu Innlent Ætlar að hafa lokað þrátt fyrir tífaldan íbúafjölda Innlent Íslendingur og útlendingur í gæsluvarðhaldi vegna mannsláts í Kópavogi Innlent Ákærður fyrir að nauðga stúlku í heitum potti fyrir rúmum áratug Innlent Gat ekki hringt í 112 þegar alblóðugur maður bankaði upp á Innlent Fundu níu skipsflök og ummerki um snjóflóð á hafsbotni við Siglufjörð Fréttir Þurfa dýr að vera með sólmyrkvagleraugu þann 12. ágúst? Innlent Þrír handteknir á Þingvöllum Innlent Fleiri fréttir Fólksfjöldi á Hellissandi tífaldast Leita ferðamannanna sem skildu fimm ára son sinn eftir í bíl Pysjutímabilið formlega hafið Bílstjóri ákærður fyrir að nauðga fatlaðri konu Bein útsending: Umdeildur fundur Baudenbacher Neitaði að borga og sló vagnstjórann Gat ekki hringt í 112 þegar alblóðugur maður bankaði upp á Huga þurfi líka að heimferðinni Íslendingur og útlendingur í gæsluvarðhaldi vegna mannsláts í Kópavogi Ákærður fyrir að nauðga stúlku í heitum potti fyrir rúmum áratug Bónus lokað vegna eldsvoða um helgina Ætlar að hafa lokað þrátt fyrir tífaldan íbúafjölda Báturinn fannst eftir nokkuð umfangsmikla leit Þurfa dýr að vera með sólmyrkvagleraugu þann 12. ágúst? Þrír handteknir á Þingvöllum Hvað er vitað um manndrápið á Kársnesi? TF-SIF grennslast fyrir um skemmtibát á Sundunum Aukinn viðbúnaður vegna almyrkva á Reykjanesi Manndráp í Kópavogi og styttist óðfluga í sólmyrkvann Björgun við Háafoss krefjandi vegna böruburðar Óttast að stefni í kreppuverðbólgu Wilhelm Wessmann er látinn Sækja slasaðan mann að Háafossi Breyting á geðheilsu og líkamlegu þreki Árekstur á Suðurlandsbraut Nokkrir handteknir vegna mannsláts Maðurinn sem lögreglan leitaði að er fundinn Rannsaka manndráp á Kársnesi Mikill viðbúnaður lögreglu í Vogunum Einn fluttur á slysadeild í kjölfar alvarlegrar líkamsárásar Sjá meira