Níu húsleitir og á fjórða tug manna yfirheyrður 16. júní 2015 16:20 Amfetamín og E-töflur VÍSIR/GVA
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur lokið rannsókn á umfangsmiklu fíkniefnamáli sem teygði anga sína til Svíþjóðar, Hollands, Frakklands og Brasilíu. Við rannsóknina, sem hófst í júlí 2014, var lagt hald á tæplega 700 grömm af kókaíni, um 4 kíló af amfetamíni og rúmlega 7 kg af sterum, auk 150 kannabisplatna og 500 gramma af kannabisefnum en þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Þar kemur einnig fram að framkvæmdar hafi verið níu húsleitir í þágu rannsóknarinnar, þar af ein á veitingastað. Á fjórða tug manna var yfirheyrður og sátu tíu þeirra í gæsluvarðhaldi síðastliðið haust vegna rannsóknarhagsmuna, þar af einn í Svíþjóð. Gæsluvarðhald þeirra varði frá fjórum og upp í sextán daga, en hinir sömu eru allir íslenskir ríkisborgarar með einni undantekningu. Sá sem var handtekinn í Svíþjóð hefur þegar hlotið dóm ytra fyrir sinn þátt í málinu. Sama á við um brasilíska konu, sem var dæmd í árs fangelsi hérlendis, en hún var burðardýr í málinu. Málið verður sent til embættis ríkissaksóknara á næstu dögum, en sakborningarnir eru á aldrinum 20-44 ára. Meintir skipuleggjendur hafa allir áður komið við sögu hjá lögreglu, en einn þeirra var að afplána dóm fyrir kókaínsmygl á sama tíma og umrætt mál var í rannsókn. Viðkomandi afplánar nú eftirstöðvar þess dóms. Rannsóknin var unnin í samvinnu við lögregluna á Suðurnesjum, tollgæsluna og tengslaskrifstofu Íslands hjá Europol. Þá naut lögreglan aðstoðar lögregluyfirvalda í Svíþjóð, Frakklandi og Brasilíu. „Eins og fram hefur komið var málið mjög umfangsmikið og margþætt, en lögreglan stöðvaði innflutning á kókaíni til Íslands frá bæði Hollandi og Brasilíu, sem og innflutning á amfetamíni til Íslands frá Svíþjóð,“ segir í tilkynningunni. Enn fremur var stöðvaður innflutningur á sterum til Íslands frá Kína, auk framleiðslu á kannabisefnum hér á landi.
Mest lesið Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi Innlent Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Erlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Segir upp eftir tvær vikur í starfi Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Fleiri fréttir Forstjórar leita lausna Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Sjá meira