Innlent

Dýrunum verður ekki hleypt alls staðar inn

Linda Blöndal skrifar
Skiptar skoðanir eru meðal kaffihúsaeigenda um hvort leyfa eigi gæludýr á stöðunum en borgarstjórn hefur samþykkt að láta reyna á það hvort dýrahald á veitingastöðum verði gefið frjálst. Meirihluti borgarstjórnar mun beina því til ríkisvaldsins að sveitarfélög megi sjálf ráða því hvernig reglur um hollustuhætti og matvæli er háttað og þá hvort að eigendum kaffihúsa og veitingastaða og annarra samkomustaða verði í sjálfvald sett að leyfa dýr inni á stöðunum.  

Ekki vandamál

Í Vesturbænum telja staðarhaldarar allt mæla með því að meira frelsi verði gefið í þessum efnum. Margrét Marteinsdóttir er vert á Kaffihúsi Vesturbæjar: „Okkur er treyst fyrir veitingarekstri og þá á að treysta okkur fyrir þessu. Að því sögðu þá erum við líka mjög hlynnt því að dýrin fái að koma hérna inn, sérstaklega á rigningardögum og þegar það er frost. Ég hef enga áhyggjur af því að það fyllist hér allt af dýrum", sagði Margrét í fréttum Stöðvar 2 í kvöld. Aðspurð um hvort að ekki sé vandamál að sumir þjáist af ofnæmi fyrir hundum og köttum segir Margrét að það sé eitthvað sem brugðist yrði við í hverju tilfelli fyrir sig. „Það á ekki að mæta þessu sem einhverjum vanda heldur frekar að bregðast við. Ef það kemur manneskja hérna inn og er með ofnæmi og hundur er inni þá fer hundurinn út, það er ósköp einfalt", segir hún og bendir á aðra þekkta ofnæmisvalda sem séu víða á matsölustöðum. „Við erum til dæmis með hnetur hérna og Kiwi og fleira sem eru bráðaofnæmisvaldar en það er bara brugðist við því þegar á við", segir hún.  



Ekki gefa sér neikvæða reynslu

Herdís Hallmarsdóttir, varaformaður Hundaræktendafélags Íslands segir að hugsa verði málið út frá sjálfsögðu frelsi fólks en ekki banni. „Af hverju á að takmarka rétt okkar sem eigum hund vegna þess að fyrirfram sé búið að gefa sér að einhverjir hundaeigendur munu hegða sér á óábyrgan hátt. Við eigum bara að bregast við því", segir Herdís.

Kaffitár myndi ekki opna fyrir dýrum 

Fréttastofa hafði samband við nokkra veitinga- og kaffihúsaeigendur sem virtust jákvæðir gagnvart dýrahaldi á sínum stöðum og sum staðar koma fastakúnnar með hundinn sinn á þessa staði. Ekki eru þó allir á einu máli og á einni stærstu kaffihúsakefðju landsins, Kaffitári, mun dýrunum ekki verða hleypt inn þótt frelsi verði gefið til þess, samkvæmt Aðalheiði Héðinsdóttur eiganda Kaffitárs og nefndi hún meðal annars að sumt fólk óttaðist dýr eins og hunda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×