72 prósent ríkisstarfa eru á höfuðborgarsvæðinu Samúel Karl Ólason skrifar 22. apríl 2015 11:06 Mynd/Byggðastofnun
Alls voru ríkisstörf 22.548 stöðugildi við áramótin 2013 til 2014. Stöðugildi kvenna voru 14.141 og stöðugildi karla 8,425. Þetta kemur fram í niðurstöðum könnunar sem byggðastofnun gerði og kynntar voru á ársfundi stofnunarinnar í Vestmannaeyjum í apríl. Þarna eru þó ekki bara tiltekin stöðugildi á vegum opinberra hlutafélaga, sem voru 18.718, heldur einnig stöðugildi á vegum stofnana og aðila sem njóta framlaga frá ríkinu. Höfuðborgarsvæðið er hið eina á landinu sem er með hærra hlutfall opinberra starfa, en hlutfall af íbúafjölda landsins. Alls eru 72 prósent opinberra starfa á höfuðborgarsvæðinu, en 64,1 prósent af Íbúafjöldanum. Það svæði sem næst kemur er Norðurland vestra með 2.1 prósent stöðugildanna en 2.2 prósent íbúafjöldans. Þar næst eru Vestfirðir með 1,8 prósent stöðugildanna en 2.1 prósent íbúafjöldans. Hlutfallslega er langlægsta hlutfallið á Suðurnesjum en þar eru 3.9 prósent stöðugildanna en 6.6 prósent íbúafjöldans. Á Austurlandi eru 2,4 prósent stöðugildanna en 3,8 prósent íbúafjöldans. Í niðurstöðunum segir að um það bil 70 prósent opinberra útgjalda hér á landi komi frá ríkinu, en um 30 prósent frá sveitarfélögunum. „Þessu er þveröfugt farið annars staðar á Norðurlöndunum. Af því leiðir að stærri hluti opinberra starfa á Íslandi eru á vegum ríkisins, beint og óbeint, en á hinum Norðurlöndunum og því skiptir meira máli hér en þar hvar ríkisstörfin eru staðsett.“Frekari upplýsingar má sjá á vef Byggðastofnunar.
Mest lesið Maðurinn sem sóttur var í Glerárdal er látinn Innlent Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Innlent Halldór Árni Sveinsson er látinn Innlent Atli sagður milliliðurinn í Straumsvíkurmálinu Innlent Krefjast tæps milljarðs af félagi Bergþórs Innlent Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Innlent „Imprað á því að við séum ekki baðhús og verðum aldrei baðhús“ Innlent Trump sáir efasemdafræjum í aðdraganda þingkosninga Erlent Íslendingur reyndi að smygla milljónum í reiðufé frá Grænlandi Innlent Mótmælt í Kænugarði vegna uppsagnar varnarmálaráðherrans Erlent Fleiri fréttir Segir gríðarlegt álag á miðakaupendum í sumar Vilji til að framlengja ETS sérlausn og hvalveiðar brutu ekki gegn lögum Íslendingur reyndi að smygla milljónum í reiðufé frá Grænlandi Maðurinn sem sóttur var í Glerárdal er látinn Hálftíma dauðastríð ekki talið brot á lögum um velferð dýra Halldór Árni Sveinsson er látinn Atli sagður milliliðurinn í Straumsvíkurmálinu Krefjast tæps milljarðs af félagi Bergþórs Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Þyrla og björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði „Imprað á því að við séum ekki baðhús og verðum aldrei baðhús“ „Ég væri hikandi að hafa börnin mín hjá mér“ Bæjarstjóri í beinni, gusumeistari sem biðlar til yfirvalda og sirkus Vísað á brott af hjúkrunarheimilinu í annarlegu ástandi Allt að fjörutíuföld mengun við skemmtiferðaskip Áfram Ísland með opinn fund á Skaganum Lýsa eftir Sæbjörgu Allir sem voru í ökutækjunum uppistandandi eftir áreksturinn „Þetta voru algjörlega mannleg mistök“ Endurskoða sparkvöll við Landakot Notaði dulnefni og sveik út vörur fyrir tugi milljóna „Við erum fyrst og fremst að varða leiðina heim fyrir Grindvíkinga“ Kalla inn próteinpopp „Pólitísk ákvörðun“ hvort hraðinn verði 90 eða 110 Ráðherra með „fráleita hótun“ Stærsti veðmálaviðburður sögunnar nær til ungs fólks Ógnvænleg hegðun daglegt brauð: „Það er orðin raunin í þessum bransa“ Formaður Brunavarna Árnessýslu: Málið litið mjög alvarlegum augum Sjá meira