Þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn þremur börnum 22. apríl 2015 17:08 vísir/gva
Hæstiréttur Íslands þyngdi í dag dóm yfir Birki Má Ingimarssyni fyrir að hafa brotið gegn þremur börnum árið 2010. Dómur hans var þyngdur úr skilorðsbundnum tveimur árum og níu mánuðum í óskilorðsbundið þrjú og hálft ár, vegna alvarleika brotanna. Þá var Davíð Páll Jónsson á sama tíma dæmdur í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi til tveggja ára fyrir að hafa, ásamt Birki, áreitt þrettán ára stúlku kynferðislega. Davíð Páll er 25 ára og Birkir Már 28 ára. Birkir Már var dæmdur fyrir að hafa haft samræði við fjórtán ára stúlku og fyrir að hafa brotið gegn fjórtán ára dreng á heimili sínu árið 2010. Veitti hann jafnframt tveimur börnum á fermingaraldri aðgang að fíkniefnum og aðstoðaði þrjú börn við að komast úr umsjá foreldra sinna er hann leyfði þeim að gista á heimili sínu eina nótt.Gaf dreng fíkniefni og smjörsýru áður en hann braut á honum Birkir var einnig ákærður fyrir að hafa gefið fjórtán ára dreng fíkniefni og smjörsýru svo honum varð ekki sjálfrátt og „farið með hann inn í svefnherbergi sitt, klætt hann úr fötum, strokið og nuddað á honum kynfærin, látið hann gera það sama við sig og nuddað kynfærum sínum og líkama upp við líkama hans.“ Jafnframt var Birkir ákærður fyrir að hafa í október 2010 haft í vörslu sinni barnaklám. Brot Birkis og Davíðs átti sér stað í september 2010 en þeim var gefið að sök að hafa flett niður brjóstarhaldara og bol þrettán ára stúlku, sem samkvæmt dómnum var bjargarlaus eftir neyslu fíkniefna, og tekið af henni ljósmyndir. Ákæra í málinu var ekki gefin út fyrr en rúmum þremur árum eftir að umrædd atvik áttu sér stað. Héraðsdómur taldi að „málið hafi dregist úr hófi fram“ og þótti honum rétt að fresta fullnustu refsingar og láta hana falla niður að tveimur árum liðnum. Þessu var Hæstiréttur þó ekki sammála og sá ekki tilefni til að skilorðsbinda refsinguna, í ljósi alvarleika brotanna. „Þegar litið er til þess óhóflega dráttar, sem orðið hefur á meðferð þessa máls og gerð hefur verið grein fyrir, verður þessum ákærða gert að sæta fangelsi í þrjú ár og sex mánuði,“ segir í niðurstöðu dómsins. Birki Má var gert að greiða börnunum samtals 2,2 milljónir í miskabætur Birki og Davíð var gert að greiða stúlkunni samtals 800 þúsund krónur.
Mest lesið Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Erlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Fleiri fréttir Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Sjá meira