Priyanka hefur ekkert heyrt frá fjölskyldu sinni Sunna Karen Sigurþórsdóttir og Sandra Guðrún Guðmundsdóttir skrifar 27. apríl 2015 19:08 "Ég hef áhyggjur af mömmu minni þar sem hún var í hjartaaðgerð fyrir jól og hún þarf að fara reglulega á spítala í meðferð, en núna er líklega ekkert pláss fyrir hana,“ segir Priyanka. vísir/anton brink
Hin nepalska Priyanka Thapa hefur ekkert heyrt frá fjölskyldu sinni frá því að jarðskjálftinn reið yfir landið á laugardag. Hún segist þó hafa heyrt frá öðrum aðstandendum í Nepal að þau séu heil á húfi. Móðir Priyönku og systir búa í Katmandú, höfuðborg Nepal, því svæði sem varð hvað verst úti í skjálftanum. Nær ekkert samband er á svæðinu en gerir hún ráð fyrir að þær haldi til í neyðarskýlum í borginni. „Ég er búin að reyna að hringja síðan á föstudaginn en hef ekkert heyrt frá þeim, en mig langar til að heyra í þeim. Ég hef áhyggjur af mömmu minni þar sem hún var í hjartaaðgerð fyrir jól og hún þarf að fara reglulega á spítala í meðferð, en núna er líklega ekkert pláss fyrir hana,“ segir Priyanka í samtali við Vísi. „Ég á fullt af vinum sem eru að deila myndum af Facebook, svo ég geti fylgst með. Þau hafa sagt að það sé ekkert pláss á spítala og það vantar fullt af lyfjum svo ég er hrædd um að mamma mín geti ekki fengið þá meðferð sem hún þarf,“ bætir hún við. Priyanka skoðar nú möguleikann á að fara út að finna fjölskyldu sína og aðstoða fólk í neyð. Hún ólst upp í Katmandú, yngst fjögurra systkina. Árið 2011 stóð hún frammi fyrir því að verða senda aftur til síns heima, þar sem hún átti að giftast fertugum karlmanni, en þá var hún 24 ára. Hún hafði þá dvalist á Íslandi í nokkurn tíma en var synjað um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Mál hennar var tekið upp aftur ári síðar og fékk hún að lokum dvalarleyfið. Hún var í opinskáu viðtali við Fréttablaðið árið 2013 en það má lesa hér. Rauði krossinn heldur úti leitarþjónustu í Nepal. Opnuð var vefsíða þess efnis en hana má sjá hér. Þá ákvað Rauði krossinn á Íslandi í dag að senda fulltrúa í hjálparstarf í Nepal og heldur sá fyrsti utan á morgun. Einnig er hægt að styrkja starf Rauða krossins í Nepal með því að hringja í:904-1500 (framlag: 1.500)904-2500 (framlag: 2.500)904-5500 (framlag: 5.500) Hægt er að leggja inn fé á reikning Rauða krossins:0342-26-12kt. 530269-2649Unicef hefur einnig sett af stað söfnun en séu skilaboðin UNICEF send í símanúmerið 1900 verða 1.500 krónur skuldfærðar af símreikningi.
Tengdar fréttir Svona fundu íslenskir foreldrar son sinn í Nepal Notuðu Facebook, Twitter og Google-kort. 27. apríl 2015 07:00 Tala látinna komin yfir 3.600 Minnst 6.500 eru sagðir hafa slasast í jarðskjálftanum í Nepal. 27. apríl 2015 10:15 Besti staðurinn til að vera á Hin nepalska Priyanka Thapa fékk tímabundið dvalarleyfi hér á landi á síðasta ári af mannúðarástæðum. Nú lærir hún lyfjafræði við HÍ og brillerar á prófum, auk þess að sinna fötluðum samnemanda sínum sem einnig gengur vel í náminu. 5. janúar 2013 21:45 Priyanka komin með dvalarleyfi: "Það skín sól í hjarta mínu" Priyanka Thapa hefur fengið dvalarleyfi hér á landi af mannúaðarástæðum en eftir að henni var synjað um dvalarleyfi fyrir um ári síðan var málið tekið upp aftur. "Draumar rætast eftir allt saman," segir Priyanka á Facebook-síðu sinni. 12. apríl 2012 20:16 Mest lesið Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Innlent Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Innlent Fleiri fréttir Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Sjá meira
Svona fundu íslenskir foreldrar son sinn í Nepal Notuðu Facebook, Twitter og Google-kort. 27. apríl 2015 07:00
Tala látinna komin yfir 3.600 Minnst 6.500 eru sagðir hafa slasast í jarðskjálftanum í Nepal. 27. apríl 2015 10:15
Besti staðurinn til að vera á Hin nepalska Priyanka Thapa fékk tímabundið dvalarleyfi hér á landi á síðasta ári af mannúðarástæðum. Nú lærir hún lyfjafræði við HÍ og brillerar á prófum, auk þess að sinna fötluðum samnemanda sínum sem einnig gengur vel í náminu. 5. janúar 2013 21:45
Priyanka komin með dvalarleyfi: "Það skín sól í hjarta mínu" Priyanka Thapa hefur fengið dvalarleyfi hér á landi af mannúaðarástæðum en eftir að henni var synjað um dvalarleyfi fyrir um ári síðan var málið tekið upp aftur. "Draumar rætast eftir allt saman," segir Priyanka á Facebook-síðu sinni. 12. apríl 2012 20:16