Ellefu ára grænlenskur herramaður klossmátaði Hrafn Jakob Bjarnar skrifar 3. apríl 2015 10:00 Hrafn, eða Tulugaq, floginn til Grænlands yfir páska og sannarlega ekki í fyrsta skipti.
Í gær hófst skákhátíð Hróksins í Ittoqqortoormiit, afskekktasta þorpi Grænlands en þar búa liðlega 400 manns. Stendur hátíðin yfir alla páskana en með forseta Hróksins, Hrafni Jökulssyni í för er Jón Grétar Magnússon. Vísir heyrði í Hrafni, sem reyndar heitir Tulugaq á Grænlensku, á austur-grænlensku: Qaardulu, í gærkvöldi og lét hann vel af sér segir með ólíkindum skemmtilegt að vappa um 70. breiddargráðu og gegna þessum ágætu nöfnum. „Hér í Scoresby-sundi er í raun höfuðvígi Hróksins – öll börnin kunna að tefla eftir árlegar hátíðir í áratug. Og mörg af börnunum hafa komið til Íslands að læra sund og kynnast íslensku samfélagi. Í dag tefldi ég fjöltefli í boði vina okkar hjá Tele-Post, sem gaf öllum börnunum glaðning, og þurfti svo sannarlega að hafa mig allan við. Tilkynnist með stolti að einn 11 ára herramaður klossmátaði mig.“ Engum er það sérstakt ánægjuefni að tapa skák, Hrafn er þar sannarlega engin undantekning en að þessu sinni tók hann tapinu svona líka vel. Hrókurinn hefur heimsótt Ittoqqortormiit um hverja páska í áratug, og er skákkunnátta hvergi jafn almenn á Grænlandi og þetta sýnir það og sannar.Meistaramótið í dagHrókurinn byrjaði landnám skáklistarinnar á Grænlandi árið 2003 og nú stendur þrettánda starfsár félagsins á Grænlandi yfir.„Markmið okkar er ekki bara að útbreiða skáklistina, sem er holl og uppbyggileg tómstundaiðja fyrir börn sem hefur góð áhrif á námsárangur. Við viljum auka og efla samskipti þjóðanna á sem flestum sviðum og lítum svo á að Íslendingar sé allra þjóða heppnastir með nágranna,“ segir Hrafn. Og bætir því við glaður að á ýmsum sviðum sjáist merki um aukin samskipti þjóðanna og telur að því beri að fagna. Í dag verður haldið stórmót um meistaratign bæjarins, þar sem öll börnin fá páskaegg frá Bónus og fleiri vinninga. Á laugardag verður Norlandair-mótið haldið og þar verða vinningar frá prjónahópi Rauða krossins og íslenskum fyrirtækjum, auk þess sem öll börn fá glaðning frá Nóa Sírús. Á mánudag verður svo haldinn „Dagur vináttu Íslands og Grænlands“.Gleðin að leiðarljósiSamhliða skákhátíðinni er haldinn myndasamkeppni Hróksins og Pennans, þar sem börnin í bænum eru beðin um að draga upp myndir úr sínu daglega lífi. Hróksmenn mættu til bæjarins með myndir sem 5 ára stúlkur í Leikskólanum Öskju teiknuðu fyrir börnin í Ittoqqortoormiit og hafa þær vakið mikla athygli í bænum. Að sögn Hrafns er yfirskrift 13. starfsárs Hróksins á Grænlandi: Gleðin að leiðarljósi, og sannarlega bera myndirnar sem Hrafn sendi Vísi þess merki.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Fleiri fréttir Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Sjá meira