Fara fram á afsökunarbeiðni frá Krabbameinsfélaginu Samúel Karl Ólason skrifar 5. apríl 2015 15:26 Vísir/Vilhelm
Forsvarsmenn Liv ehf. segjast hafa dregist inn í óvægna ófrægingarherferð Krabbameinsfélags Íslands gegn Bláa naglanum. Þær Halla og Lára Liv Ólafsdætur vísa til greinar Kristjáns Oddssonar, yfirlæknis Krabbameinsfélagsins sem birtist í DV þann 17. mars, þar sem hann „beinir spjótum sínum að Bergljótu Halldórsdóttur lífefnafræðingi, sem er faglegur ráðgjafi hjá fyrirtækinu,“ þetta kemur fram í tilkynningu frá Höllu og Láru. Greinina má einnig sjá hér á síðu Krabbameinsfélagsins. Í tilkynningunni má segir að Kristján væni Bergljótu um að nota lögverndað starfsheiti stéttar sinnar til að gefa almenningi misvísandi upplýsingar. „Hann ræðst af óskiljanlegum ástæðum á æru Bergljótar með dylgjum um óheiðarleika og dregur hreinlega í efa hæfi hennar sem reynslumikils lífefnafræðings. Finna má í það minnsta fjórar ærumeiðandi staðhæfingar í garð Bergljótar í greininni.“ Þær óska þess að Krabbameinsfélagið, stjórn þess og Kristján, biðji Bergljótu opinberlega afsökunar á „meiðandi ummælum í hennar garð“ og að greinin verði fjarlægð af vef Krabbameinsfélagsins. Tilkynningu Höllu og Láru í heild sinni má sjá hér að neðan.Forsvarsmenn Liv ehf., umboðsaðila Biomarica ( EZ Detect heimaprófa) hafa dregist inn í óvægna ófrægingarherferð Krabbameinsfélags Íslands gegn Bláa naglanum og í grein Kristjáns Oddssonar, yfirlæknis Krabbameinsfélags Íslands sem birtist í DV þann 17.3.2014 beinir hann spjótum sínum að Bergljótu Halldórsdóttur lífefnafræðingi, sem er faglegur ráðgjafi hjá fyrirtækinu.Í greininni vænir Kristján Bergljótu um að nota lögverndað starfsheiti stéttar sinnar til að gefa almenningi misvísandi upplýsingar. Hann ræðst af óskiljanlegum ástæðum á æru Bergljótar með dylgjum um óheiðarleika og dregur hreinlega í efa hæfi hennar sem reynslumikils lífefnafræðings. Finna má í það minnsta fjórar ærumeiðandi staðhæfingar í garð Bergljótar í greininni. Kristján leggur henni einnig orð í munn, tekur úr samhengi athugasemdir og gerir lítið úr ævistarfi sem hún hefur unnið af að heilindum og óþreytandi áhuga og metnaði. Starf Bergljótar sem lífeindafræðingur var ekki bara starf fyrir henni, heldur einnig helsta áhugamál í yfir 40 ár. Þrotlaus vinna og áhugi varð til þess að árið 2002 varð hún fyrst Íslendinga til að hljóta vísindaverðlaun Alþjóðasamtaka meinatækna fyrir rannsóknir sínar á blóði, þvagi, saur og öðrum líkamsvökvum.Ummæli Kristjáns Oddssonar eru afar meiðandi og til þess fallin að grafa undan trúverðugleika Bergljótar. Ekki er nóg með að þessar vafasömu staðhæfingar hafi birst opinberlega í DV, heldur er þessi grein Kristjáns aðgengileg á vef Krabbameinsfélags Íslands.Yfirlæknirinn gefur m.a. í skyn að Bergljót ´lífeindafræðingurinn` gefi almenningi misvísandi upplýsingar í skjóli lögverndaðs starfheiti stéttar sinnar ásamt því að leyna því að fjölskylda hennar sé umboðsaðili fyrir EZ Detect á Ísland.i Slíkar dylgjur eru með ólíkindum og sæma ekki virðulegri stofnun eins og Krabbameinsfélagi Íslands. Það skal tekið fram að hvorki Bergljót né Liv ehf. (umboðsaðili EZ Detect heimaprófa) hafa stundað óheiðarlega viðskiptahætti og hafa engan fjárhagslegan ávinning af framlagi Bláa naglans til forvarna/vakningar á ristilkrabbameini. EZ Detect heimaprófin hafa verið í dreifingu á Íslandi í 5 fimm ár. Bergljót hefur verið ötull talsmaður þeirra og komið fram í fjölmiðlum og víðar. Engar misvísandi upplýsingar hafa komið frá talsmönnum EZ Detect á Íslandi varðandi gagnsemi prófsins. Tilbúningi og róg vísum við til föðurhúsanna sem því miður er Krabbameinsfélag Íslands.F.h. Liv ehf. óskum við þess að Krabbameinsfélagið, stjórn þess og Kristján Oddsson yfirlæknir, biðji Bergljótu Halldórsdóttur, lífeindafræðing opinberlega afsökunar á meiðandi ummælum í hennar garð ásamt því að fjarlægja meiðandi grein af vef Krabbameinsfélags Íslands.Halla og Lára Liv Ólafsdætur, forsvarsmenn Liv ehf.Það skal einnig tekið fram að Liv ehf. styður starf Bláa naglans af heilum hug. Með óeigingjörnu framlagi og gríðarlegri vinnu hafa samtökin á undanförnum árum lagt sitt af mörkum til að vekja athygli á krabbameini karla, að okkar mati með frábærum árangri. Þetta framlag ber að virða.
Mest lesið „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Segir erfitt að horfa upp á nágranna missa aleiguna Erlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Rúmlega 50 heimili horfin í stórbruna í Drammen Erlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Maðurinn sem sóttur var í Glerárdal er látinn Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Bongóblíða um nánast allt land og rofar til í borginni um stund Veður Halldór Árni Sveinsson er látinn Innlent „Galið að komast að þessari niðurstöðu“ Innlent Fleiri fréttir „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Kvöldfréttir Sýnar í beinni Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Sveitarfélögin óþreyjufull og krefjast svara frá ráðherrum Fiskibátur varð aflvana við Stykkishólm Vegabréfsgjaldið hækkaði um fimm þúsund milli ára „Galið að komast að þessari niðurstöðu“ Krefjast lögbanns við laxveiðum Iðufólks í Stóru-Laxá Telur bikblæðingu hafa valdið brunanum Fólk eigi að hugsa sig tvisvar um ef því er ekki hleypt inn á heimilið Þyrla Gæslunnar kölluð út á Landmannaleið Segir gríðarlegt álag á miðakaupendum í sumar Vilji til að framlengja ETS sérlausn og hvalveiðar brutu ekki gegn lögum Íslendingur reyndi að smygla milljónum í reiðufé frá Grænlandi Maðurinn sem sóttur var í Glerárdal er látinn Hálftíma dauðastríð ekki talið brot á lögum um velferð dýra Halldór Árni Sveinsson er látinn Atli sagður milliliðurinn í Straumsvíkurmálinu Krefjast tæps milljarðs af félagi Bergþórs Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Þyrla og björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði „Imprað á því að við séum ekki baðhús og verðum aldrei baðhús“ „Ég væri hikandi að hafa börnin mín hjá mér“ Bæjarstjóri í beinni, gusumeistari sem biðlar til yfirvalda og sirkus Vísað á brott af hjúkrunarheimilinu í annarlegu ástandi Sjá meira