Innlent

Barn alvarlega slasað eftir dráttarvélarslys

Bjarki Ármannsson skrifar
Barn slasaðist alvarlega í dráttarvélaslysi í dag.
Barn slasaðist alvarlega í dráttarvélaslysi í dag. Vísir/AFP
Barn slasaðist alvarlega í dráttarvélaslysi á bæ í Vestur-Skaftafellssýslu eftir hádegið í dag. Lögregla, læknir og sjúkralið var sent á vettvang.

Frá þessu er greint á Facebook-síðu Lögreglunnar á Suðurlandi. Lögreglan vill ekki veita frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.

Uppfært klukkan 23:37

Barnið féll út um dyraop á dráttarvélinni og var úrskurðað látið á vettvangi. Nánar hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×