Þarf að yfirgefa landið á næstu 30 dögum Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 8. apríl 2015 21:26 Amanda Wood. Mynd/Amanda Wood
Þrír lögregluþjónar komu heim til Amöndu Wood í kvöld og afhentu henni bréf þar sem henni er tilkynnt að hún hafi 30 daga til að yfirgefa Ísland. „Í bréfinu segir að ef ég fari ekki úr landi á næstu 30 dögum að þá verði mér fylgt úr landi. Þá má ég heldur ekki koma aftur til Íslands næstu tvö árin,“ segir Amanda í samtali við Vísi.Vísir sagði fyrr í dag frá máli Amöndu. Hún er bandarísk en giftist íslenskum manni árið 2011 sem hóf að beita hana ofbeldi stuttu eftir brúðkaupið að hennar sögn. Þau bjuggu í Noregi í um eitt ár áður en þau fluttu aftur til Íslands árið 2012. Þá kom í ljós að eiginmaður Amöndu var ekki skráður til heimilis hér á landi og hún gat því ekki skráð sig löglega sem íbúi hér. Sumarið 2013 skildi Amanda við manninn auk þess sem hún kærði hann til lögreglu vegna ofbeldisins sem hann á að hafa beitt hana á meðan þau voru gift. Hún sótti einnig um dvalar-og atvinnuleyfi hér og útvegaði alla nauðsynlega pappíra til þess en henni hafði meðal annars verið boðið starf. Útlendingastofnun synjaði Amöndu hins vegar um atvinnu-og dvalarleyfi á grundvelli þess að hún hefur ekki næg tengsl við landið. Hér á hún fjölda vina sem hafa stutt við bakið á henni. Þá á hún einnig kærasta. Amanda kærði úrskurð Útlendingastofnunar til innanríkisráðuneytisins en ráðuneytið staðfesti það að henni skyldi vísað úr landi.
Tengdar fréttir Vill ekki að sér sé refsað fyrir eitthvað sem er ekki henni að kenna Amanda Wood giftist íslenskum manni sem hóf að beita hana ofbeldi stuttu eftir brúðkaupið. Nú, tæpum tveimur árum eftir að hún fór frá manninum vegna ofbeldisins, á að vísa henni frá Íslandi á grundvelli þess að hún hafi ekki næg tengsl við landið. 8. apríl 2015 09:15 Mest lesið Maðurinn sem sóttur var í Glerárdal er látinn Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Bongóblíða um nánast allt land og rofar til í borginni um stund Veður Halldór Árni Sveinsson er látinn Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Innlent Atli sagður milliliðurinn í Straumsvíkurmálinu Innlent „Galið að komast að þessari niðurstöðu“ Innlent Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Innlent Rúmlega 50 heimili horfin í stórbruna í Drammen Erlent Fleiri fréttir Kvöldfréttir Sýnar í beinni Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Sveitarfélögin óþreyjufull og krefjast svara frá ráðherrum Fiskibátur varð aflvana við Stykkishólm Vegabréfsgjaldið hækkaði um fimm þúsund milli ára „Galið að komast að þessari niðurstöðu“ Krefjast lögbanns við laxveiðum Iðufólks í Stóru-Laxá Telur bikblæðingu hafa valdið brunanum Fólk eigi að hugsa sig tvisvar um ef því er ekki hleypt inn á heimilið Þyrla Gæslunnar kölluð út á Landmannaleið Segir gríðarlegt álag á miðakaupendum í sumar Vilji til að framlengja ETS sérlausn og hvalveiðar brutu ekki gegn lögum Íslendingur reyndi að smygla milljónum í reiðufé frá Grænlandi Maðurinn sem sóttur var í Glerárdal er látinn Hálftíma dauðastríð ekki talið brot á lögum um velferð dýra Halldór Árni Sveinsson er látinn Atli sagður milliliðurinn í Straumsvíkurmálinu Krefjast tæps milljarðs af félagi Bergþórs Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Þyrla og björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði „Imprað á því að við séum ekki baðhús og verðum aldrei baðhús“ „Ég væri hikandi að hafa börnin mín hjá mér“ Bæjarstjóri í beinni, gusumeistari sem biðlar til yfirvalda og sirkus Vísað á brott af hjúkrunarheimilinu í annarlegu ástandi Allt að fjörutíuföld mengun við skemmtiferðaskip Sjá meira
Vill ekki að sér sé refsað fyrir eitthvað sem er ekki henni að kenna Amanda Wood giftist íslenskum manni sem hóf að beita hana ofbeldi stuttu eftir brúðkaupið. Nú, tæpum tveimur árum eftir að hún fór frá manninum vegna ofbeldisins, á að vísa henni frá Íslandi á grundvelli þess að hún hafi ekki næg tengsl við landið. 8. apríl 2015 09:15