Hélt ekki að hún myndi lifa af slysið Þóra Kristín Ásgeirsdóttir skrifar 24. mars 2015 18:49
Alexandra Ósk Magnúsdóttir, sem lenti í bílveltu ásamt tveimur börnum sínum, á Ósabotnavegi nálægt Sandgerði, um helgina, var búin að gefa upp alla von um að hún myndi lifa slysið af en óskaði þess heitt að börnunum hennar yrði bjargað. Tvær refaskyttur bar að fyrir hreina tilviljun. Hún var að tala við dóttur sína í aftursætinu og lítur augnablik í baksýnisspegilinn, lendir í lausamöl úti í kanti og missir stjórn á bílnum, sem fór margar veltur. Hún kastaðist um bílinn, upp undir þakið og út um gluggann, þar sem hún lenti undir bílnum.Með fjölskyldunni.Stöð 2Vinirnir Najdan Ilievski og Nikola Tisma sáu bifreiðina fyrir tilviljun en vélin var ekki í gangi en annað stefnuljósið logaði. Þeir flýttu sér á staðinn til að kanna aðstæður en þegar þeir komu nær heyrðu þeir barnsgrát. Tvö börn, Díana 3 ára og Sigurður Mikel 1 árs, voru föst í öryggisstólum í aftursætinu og héngu á hvolfi í beltunum. Mennirnir veltu bílnum við og sáu þá Alexöndru Ósk sem var mikið slösuð. Hún var með meðvitund allan tímann þrátt fyrir að hafa verið mikið slösuð. Hún segir að bara það að heyra þá tala saman þegar þeir nálguðust bílinn hafi fyllt hana von. Hún sé mönnunum afar þakklát, í raun sé þetta hreint kraftaverk.Najdan segir þá Nikola hafa grátið eftir á, það hafi verið hræðileg tilhugsun að þeir hafi verið þarna fyrir hreina tilviljun, og hvað hefði getað gerst ef svo hefði ekki verið. Alexandra sem slasaðist mikið er nú úr allri hættu. Börnin sakaði ekki. Þau ætla að bjóða bjargvættum sínum heim á morgun og þakka þeim fyrir.Í sjónvarpsfréttinni er ranglega sagt að Alexandra Ósk hafi verið að tala í síma þegar hún missti stjórn á bílnum. Hún var að tala við dóttur sína sem var í aftursæti bifreiðarinnar. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum.
Tengdar fréttir Mennirnir sem björguðu konu og börnum við Garðskagaveg enn að jafna sig „Ég er ennþá alltaf að hugsa um þetta,“ segir Najdan Ilievski. 23. mars 2015 19:41 Mest lesið Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Erlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Komið að ögurstundu Erlent Friðarviðræður runnu út í sandinn Erlent Maður hífður upp úr Ölfusá Innlent Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Innlent Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Innlent Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Erlent Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Innlent Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Innlent Fleiri fréttir Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Spá enn vaxtahækkun í maí Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Verzló hreppti hljóðnemann eftir sigur gegn MR Landskjörstjórn telur spurningu Þorgerðar gildishlaðna Góðan daginn býður góðan dag Óvæntur ríkisstjórnarfundur boðaður að kvöldi Sólheimar segja upp þjónustusamningnum „Þegar allt þrýtur þá ganga gerendur lengra og lengra“ Sjá meira
Mennirnir sem björguðu konu og börnum við Garðskagaveg enn að jafna sig „Ég er ennþá alltaf að hugsa um þetta,“ segir Najdan Ilievski. 23. mars 2015 19:41