Tilraun hafin í söfnun glers á grenndarstöðvum Atli Ísleifsson skrifar 12. mars 2015 17:22 Talið er að árið 2014 hafi rúmlega eitt þúsund tonn af gleri og steinefnum fallið til í Reykjavík og verið urðuð með blönduðum úrgangi í Álfsnesi. Vísir/Getty
Reykjavíkurborg hefur því hafið tilraun á söfnun glers á grenndarstöðvum. Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að markmið tilraunarinnar sé að skoða forsendur þess að endurvinna gler en í dag er gleri safnað með steinefnum og notað sem burðarlag og þannig endurnýtt. „Tilraunin er jafnframt liður í að auka gæði moltu sem unnin verður í gas- og jarðgerðarstöð SORPU bs. sem ætlunin er að reisa í Álfsnesi.Skógarsel, Laugardalslaug og KjarvalsstaðirÍ byrjun verður söfnunargámum undir glerumbúðir komið fyrir á þremur grenndarstöðvum við Skógarsel, Laugardalslaug og Kjarvalsstaði. Í gámana má skila hvers konar gleri sem fellur til á heimilum, s.s. sultukrukkum, glerflöskum án skilagjalds og öðrum ílátum úr gleri. Glerið má hvort sem er vera glært eða litað en þarf að vera hreint og ílát tóm. Talið er að árið 2014 hafi rúmlega eitt þúsund tonn af gleri og steinefnum fallið til í Reykjavík og verið urðuð með blönduðum úrgangi í Álfsnesi. Gler er um 5% alls blandaðs úrgangs sem endar í gráum tunnum borgarbúa samkvæmt nýlegri greiningu SORPU bs. á samsetningu úrgangs. Það er því til nokkurs að vinna að flokka það frá.Endurvinnsla glers borgar sigÚt frá umhverfislegu sjónarhorni borgar sig að flokka, safna, flytja út og endurvinna gler frá Íslandi. Efla verkfræðistofa vann nýlega mat á umhverfisáhrifum og ávinningi af söfnun, útflutningi, flokkun og endurvinnslu umbúðaglers frá Íslandi með aðferðafræði vistferilsgreiningar (e. Life Cycle Assessment, LCA) fyrir Úrvinnslusjóð og Endurvinnsluna. Niðurstöðurnar voru að flokkun, söfnun, flutningur og endurvinnsla glers borgar sig út frá umhverfisáhrifum í öllum umhverfisáhrifaflokkum.Söfnun glers viðbót við þjónustu grenndarstöðvaGrenndarstöðvar í Reykjavík eru 57. Árið 2014 söfnuðust í þær 993 tonn af pappír og 70 tonn af plasti. Mest safnast á stöðinni við Bústaðarveg. Á mörgum grenndarstöðvum hafa Bandalag íslenskra skáta og Rauði krossinn komið fyrir söfnunarskápum fyrir drykkjarumbúðir með skilagjaldi og textíl. Söfnun glers á grenndarstöðvum er því hrein viðbót við þjónustu grenndarstöðvanna. Með samþykkt núgildandi Aðalskipulags Reykjavíkur sem gildir til 2030 var ákveðið að byggja enn frekar upp þjónustu stöðvanna í Reykjavík til að auðvelda flokkun og endurnýtingu endurvinnanlegra efna.“
Mest lesið Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Innlent Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent „Þetta er erfiður mánudagur“ Innlent Fleiri fréttir Neitar að hafa beitt fósturbörnin á Gauksstöðum ofbeldi Vara dýraeigendur við: Gruna að eitrað hafi verið fyrir tveimur dýrum Gæti sektað flugstjóra um allt að átta milljónir króna Óvarfærið orðalag geti orðið til vandræða í áratugi Kristrún hafi staðið sig best en Inga verst Þögul sem gröfin um meintan trúnaðarbrest Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Deilt um orðalag á kjörseðli, trúnaðarbrestur og vinsældir ráðherra Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Miðflokkurinn úr leik í Árborg Krefja Ingu svara við leikskólaáformum Samfylkingarinnar „Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum“ Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi „Þetta er erfiður mánudagur“ Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Gera ekki aðra atlögu Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Sjá meira