Helgistað álfa í Gálgahrauni bjargað Birgir Olgeirsson skrifar 18. mars 2015 15:31 Ragnhildur Jónsdóttir, talskona álfanna, fylgist með flutningi Ófeigskirkju.
Í dag var fluttur stór og áberandi steinn úr vegstæði nýs Álftanesvegar í Gálgahrauni/Garðahrauni þar sem vegurinn liggur fram hjá Prýðishverfinu í Garðabæ. Þetta er þó enginn venjulegur steinn því hann er talinn helgistaður álfa og var talsmaður þeirra, Ragnhildur Jónsdóttir, fengin til að fylgjast með framkvæmdunum og tryggja góð samskipti á milli verktakans og álfanna. Umræddur steinn var settur til hliðar við veginn þar sem er að finna aðrar tilkomumiklar steinmyndanir. „Þessi hluti sem er verið að færa núna er kallaður Ófeigskirkja. Þetta er kapella, til að nota mennskt orð yfir þetta. Ófeigskirkja er sett við hliðina á stórum helgistað, mikilli álfakirkju, sem er hérna þannig að þetta verður mikið helgisvæði. Þetta er svona bænastaður,“ segir Ragnhildur sem er afar þakklát þeim sem sáu um þessa framkvæmd að sýna álfunum þessa virðingu.„Þetta er náttúrlega svakalegt fyrirtæki og heilmikið verk að koma þessu fyrir,“ segir Ragnhildur um flutning á Ófeigskirkju.„Þetta er náttúrlega svakalegt fyrirtæki og heilmikið verk að koma þessu fyrir. Ég get ekki annað en verið ánægð og þakklát fyrir þessa virðingu sem er verið að sýna álfunum og þeirra helgistað. Mér finnst þeir vinna þetta af alúð þessir menn þó svo við hefðum verið algjörlega ósammála um hvar vegurinn eigi að liggja að þá getur maður ekki annað en verið þakklátur fyrir þessa virðingu sem helgistað álfanna er sýndur,“ segir Ragnhildur sem rekur Álfagarðinn í Hellisgerði en hún er einnig formaður Hraunavina og var á meðal níumenningana sem dæmdir voru til greiðslu 100 þúsund króna sektar fyrir að óhlýðnast lögreglu þegar þeir mótmæltu vegaframkvæmdum í hrauninu haustið 2013. „Ég er talsmaður álfanna, það heyrist svo illa í þeim. Ég hefði aldrei samþykkt að vera með í þessu nema að álfarnir yrðu sáttir við að þessum bænastað yrði bjargað. Vegurinn mjókkar aðeins fram hjá stóru álfakirkjunni. Álfarnir voru náttúrlega ósáttir við þessa vegalagningu en fyrst að vegurinn var gerður þá eru álfarnir mjög sáttir við þetta. Kirkjan stóð í miðju vegstæðinu þannig að þetta hefði bara orðið uppfylling annars. Þetta er eiginlega tilraun í báðum heimum því þeir eru að færa orkuna sem umlykur kirkjuna og búnir að undirbúa þetta í heilt ár,“ segir Ragnhildur en spurð hvernig samskipti hennar við álfana fara fram svarar hún: „Við bara tölum saman. Ég reyni yfirleitt að tala við þá í hljóði, svona innan um annað fólk.“
Tengdar fréttir Gálgahraun til Mannréttindadómstólsins Telja kærendur að brotið á rétti Hraunavina til raunhæfra úrræða fyrir dómstólum og réttlátrar málsmeðferðar fyrir hönd félagsmanna sinna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landvernd. 13. október 2014 08:54 Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Innlent Fleiri fréttir Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Sjá meira
Gálgahraun til Mannréttindadómstólsins Telja kærendur að brotið á rétti Hraunavina til raunhæfra úrræða fyrir dómstólum og réttlátrar málsmeðferðar fyrir hönd félagsmanna sinna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landvernd. 13. október 2014 08:54