Lögregla rannsakar skotvopn í hnífstungumáli Bjarki Ármannsson skrifar 9. mars 2015 18:15 Maður sem grunaður er um aðild að hnífstunguárás í Reykjavík í síðasta mánuði hefur verið látinn laus úr gæsluvarðhaldi.
Hæstiréttur hefur fellt úr gildi gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur yfir einum þriggja manna sem grunaðir eru um sérstaklega alvarlega líkamsárás í Reykjavík aðfaranótt 26. febrúar. Maðurinn var upphaflega látinn sæta gæsluvarðhaldi til 6. mars síðastliðins vegna rannsóknarhagsmuna. Í dómi Hæstaréttar, sem birtur var í dag, segir að ekki sé talinn sterkur grunur á að maðurinn hafi framið brot sem geti varðað tíu ára fangelsisdóm.Fundust tveir blóðugir í íbúð fórnarlambsins Í greinargerð lögreglu segir að aðfaranótt 26. febrúar hafi verið óskað eftir aðstoð vegna hnífstungu. Í tilkynningunni kom fram að á staðnum væru menn vopnaðir skotvopnum. Lögregla kom að blóðugum manni sitjandi í sófa á vettvangi og yfir honum stóð annar maður með hníf. Sá sagðist aðeins vera að hjálpa og að þeir sem hefðu ráðist á manninn væru þegar farnir. Fórnarlambið sagði hinsvegar manninn sem stóð yfir sér hafa ráðist á sig. Maðurinn með hnífinn var handtekinn ásamt bróður sínum, sem fannst bak við hurð í annarri íbúð. Báðir voru þeir blóðugir, að því er segir í greinargerðinni, en sá sem fannst bak við hurðina er sá sem hefur nú verið látinn laus úr gæsluvarðhaldi. Þriðji maðurinn var svo handtekinn á heimili sínu eftir að lögreglu bárust upplýsingar frá nokkrum aðilum um að sá maður hafi verið viðriðinn árásina. Hann neitar sök og segist hafa verið hitt bræðurna fyrir tilviljun skammt frá vettvangi árásarinnar. Annar bræðranna, sá sem nú er látinn laus, sagði hinsvegar við skýrslutöku að þriðji maðurinn hafi farið með þeim bræðrum í íbúð fórnarlambsins. Þeir hafi allir verið á leið þangað til að jafna sakirnar fyrir aðra líkamsárás sem hafi átt sér stað nokkrum dögum fyrr.Skotvopn til rannsóknar hjá lögreglu Mennirnir fóru fyrst herbergisvillt og spörkuðu upp hurð hjá konu í húsnæðinu. Þaðan eiga þeir að hafa farið í rétta íbúð þar sem tveir menn búa, ráðist á þá báða og skorið annan með hnífi. Mennirnir sem ráðist var á segja bræðurna auk þriðja mannsins hafa verið vopnaða riffli. Bræðurnir neita því báðir að hafa verið með skotvopn á staðnum. Hins vegar segir í greinargerð að riffli hafi verið skilað inn til skotvopnaskrár lögreglu þann 2. mars sem komi saman við lýsingar á vopninu sem brotaþolar lýsa. Nú vinni lögregla að því að rannsaka byssuna og leita lífsýna á henni. Í greinargerð kemur einnig fram að lögregla telur hinn kærða liggja undir sterkum grun um að hafa með skipulögðum hætti framið brot sem geti varðað allt að sextán ára fangelsi. Jafnframt sé það ljóst að kærði sé hættulegur umhverfi sínu og að það myndi særa réttarvitund almennings gengi hann laus.
Mest lesið Hóta því að hleypa ekki einasta dropa af olíu eða gasi um sundið Erlent „Þessir helvítis útlendingar skilja ekki neitt“ Innlent Maður sem féll í Ölfusá fundinn Innlent Usha og JD Vance eignast sitt fjórða barn Erlent „Konungur norðursins“ sjöundi forsætisráðherrann á áratug Erlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Þrír fluttir á bráðamóttökuna í þremur aðskildum málum Innlent Mamdani skoðar að láta handtaka Netanjahú Erlent Fleiri en hundrað um borð í ferju sem hvolfdi Erlent Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor Innlent Fleiri fréttir Smíði nýrrar brúar yfir Þjórsá boðin út „Þessir helvítis útlendingar skilja ekki neitt“ Kjartan tekur við stöðu sveitarstjóra Þrír fluttir á bráðamóttökuna í þremur aðskildum málum Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Maður sem féll í Ölfusá fundinn Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Áfram geisar innbrotahrinan Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Veðrið haggist ekki að neinu ráði Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor „Það er brjálað að gera með stóru B-i“ Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Bílvelta í Skötufirði Tímafrek verkefni kennara, umferðaröryggi í Hvalfirði og stemningin á Spáni Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Facebook og tengdir miðlar liggja niðri Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Fyrri hluti júlí sá blautasti í sögu Reykjavíkur Lögregla klippti á plöturnar Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Dagrún ráðin sveitarstjóri Strandabyggðar Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Slasaðist alvarlega við heyskap Sjá meira