Tíminn að renna út varðandi samstarf við stjórnvöld Heimir Már Pétursson skrifar 12. febrúar 2015 13:00
Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir að krafa Flóabandalagsins um 20 prósenta launahækkun í kjarasamningi til eins árs, rúmist ekki innan viðmiðana. Hann tekur undir með Flóabandalaginu um að samskipti stjórnvalda við aðila vinnumarkaðrins sé ekki gott og það liggi á að laga það samband. Flóabandalagið svo kallaða, sem stendur saman af verkalýðsfélaginu Eflingu, Hlíf í Hafnarfirði og Verkalýðs- og sjómannafélagi Keflavíkur, afhenti Samtökum atvinnulífsins kröfur sínar í gær. Þær gera ráð fyrir 35 þúsund króna lágmarkshækkun launa, afnámi tveggja lægstu launaflokkanna og eingreiðslu til að leiðrétta muninn á þeim hækkunum sem samið var um í síðustu kjarasamningum og þess sem önnur félög hafa samið frá því þeir voru gerðir í desember 2013. Þorsteinn Víglundsson segir þessar kröfur ekki rúmast innan viðmiða um 3,5 prósenta launahækkun á ári til að tryggja stöðugleika. „Nei, það gefur augaleið að það gera þær ekki. Þarna er verið að fara fram á 20 prósenta launahækkun yfir alla línuna í raun og veru. Það er að segja annars vegar ákveðnar krónutöluhækkanir á lægstu laun en síðan jafnframt lagfæringar í taxtakerfum sem myndu þýða að þetta er í raun prósentuhækkun upp á um 20 prósent,“ segir Þorsteinn. Þetta sé langt umfram viðmið og myndi leiða til aukningar verðbólgu. Kröfur Flóabandalagsins séu á ársgrundvelli svipaðar og kröfur sem 16 önnur félög innan Starfsgreinasambandsins lögðu fram í síðustu viku. Vandamálið sé að aðilar séu sammála um markmið samninga um að styrkja kaupmátt en ekki aðferðina. Leið tuga prósenta launahækkana í einu stökki hafi verið reynd margoft áður. „Hún hefur alltaf skilað sömu niðurstöðu. Verðbólga hefur rokið af stað og kaupmáttaraukning þegar upp er staðið hefur orðið lítil sem engin og lakari en í stöðugleikasamningum eins og við gerðum á síðasta ári,“ segir Þorsteinn. Verðbólga sé nú og lág og einstakt tækifæri til að byggja upp kaupmátt. Sigurður Bessason formaður Eflingar segir megin skýringuna á kröfu um skammtíma samning, að Flóabandalagið treysti ekki stjórnvöldum sem gengið hafi á bak orða sinna. Þorsteinn tekur undir þetta. „Ég held að það sé alveg ljóst að samskipti milli stjórnvalda og aðila vinnumarkaðar þarf að laga;“ segir Þorsteinn. Hann bindi vonir við að áhugi til þess sé fyrir hendi hjá stjórnvöldum. „Það er alveg ljóst að við þurfum að hafa hraðar hendur núna á komandi vikum í að bæta þau samskipti og setjast yfir þau sameiginlegu verkefni sem við þurfum að horfa til,“ segir Þorsteinn. Það séu margir þættir sem stjórnvöld og aðilar vinnumarkaðarins geti horft sameiginlega til. Það þurfi að lagfæra þann mismun sem stjórnvöld höfðu forgöngu um að semja um við vissa hópa. „Við þurfum að horfa til húsnæðiskerfisins hjá okkur. Húsnæðisbóta, aukins vægis leigumarkaðar og hvernig megi þá samræma vaxtabætur og húsaleigubætur og ýmsir tengdir þættir sem ættu þá að vera sameiginlegt viðfangsefni. Við treystum því að stjórnvöld verði þá tilbúin til að koma að því verkefni með okkur. En tíminn vinnur ekkert með okkur lengur. Við þurfum að einhenda okkur í þessi verkefni,“ segir Þorsteinn Víglundsson.
Mest lesið „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent „Áfall fyrir starfsfólk“ Innlent Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Innlent Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Félag Ragnars Freys telur uppsögn hans ólögmæta Innlent Fleiri fréttir Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Ekki síður í vandræðum með bóklega kennslu Áhrif smyglmáls og hugsanleg brot stjórnvalda á alþjóðlegum skuldbindingum Flúði heimili sitt eftir að hafa hótað stofnun MMS ekki kunnugt um neinar breytingar á einkunnagjöf Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Félag Ragnars Freys telur uppsögn hans ólögmæta Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi „Áfall fyrir starfsfólk“ Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Hækjubræður á þingi Framsókn kynnti tillögu að þjóðarsátt Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Sprengingin í Fóðurblöndunni enn til rannsóknar hjá lögreglu og Vinnueftirlitinu Bein útsending: Beina sjónum að leit og björgun á norðurslóðum „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðar Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur 37 prósent landsmanna fylgjandi innheimtu veggjalda Ekkert verður af bankasamruna og Ísafjarðarflugið lifir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Fagnar fjölgun skráninga í Þjóðkirkjuna Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Sjá meira