Tilfallandi fávitaháttur Jakob Bjarnar skrifar 16. febrúar 2015 13:08 Ólíklegt hlýtur að teljast að Davíð vitni í Pál að þessu sinni í Staksteinasamantekt sinni.
Páll Vilhjálmsson Moggabloggari og kennari, sem hefur verið mjög í hávegum hafður hjá Davíð Oddssyni ritstjóra Morgunblaðsins; hann vitnar reglulega í bloggskrif Páls í pistlum blaðsins og birtir, sparar hvergi stóru orðin á bloggi sínu Tilfallandi athugasemdir þá er honum gremst. Í nýlegu bloggi sínu segir hann að blaðamaður Morgunblaðsins sé fáviti. Ástæða þessara svigurmæla er frétt Moggans þess efnis að árásarmaðurinn í skotárásinni sem gerð var í Kaupmannahöfn um helgina væri Dani. Þetta lagðist afar illa í Pál sem sagði það ekki geta staðist því nafn árásarmannsins er Omar Abdel Hamid El-Hussein. Þessi ummæli Páls hafa fallið í grýttan jarðveg á samskiptamiðlum og þannig spyr Teitur Atlason bloggari: „Er ekki Páll Vilhjálmsson fávitinn í þessu samhengi. Fáviti sem skilur ekki að Dani geti borið nafn á borð við Omar Abdel Hamid El-Hussein.“ Og Guðrúnu Hálfdánardóttur blaðamanni á mbl.is er ekki skemmt: „Það er gaman að mæta á morgunvaktina á mbl þegar svona fyrirsögn á bloggi mætir manni: „Fáviti á fréttavakt mbl.is“ [...] Jahá svo mörg eru orð míns gamla siðfræðikennara úr fjölmiðlanámi við Háskóla Íslands. Ég ætla ekki að segja neitt meir enda í tísku að höfða meiðyrðamál gegn blaðamönnum hér á landi.“ Í morgun dró svo til frekari tíðinda í þessu sérkennilega máli þegar Páll baðst afsökunar í stuttum pistli undir fyrirsögninni: „Fávitinn ég biðst afsökunar“. Sú staðreynd útaf fyrir sig er frétt því Páli er ekki gefið að biðjast afsökunar eins og sýndi sig í nýlegu meiðyrðamáli, þar sem Páll harðneitaði að bakka. Í afsökunarbeiðninni segir: „Ég bloggaði ég gær um frétt á mbl.is og sagði höfundinn fávita. Orðið vísar til einhvers sem veit fátt og var áður notað klínískt um fólk með greindarvísitölu undir 50. Í skrifum mínum reyni ég að halda mér við þá reglu að segja aldrei neitt um neinn sem ég ekki væri tilbúinn til að segja viðkomandi augliti til auglitis. Og tilfellið er að ég myndi seint segja einhvern fávita. Ég bið höfund fréttarinnar afsökunar og vona að hann fyrirgefi mér fávisku mína.“
Mest lesið Matthías Már með krabbamein Lífið Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Lífið Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Lífið Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Lífið Eiður auglýsir tyrkneska hárígræðsluklíník Lífið Nadine og Þórhildur byrja með nýtt hlaðvarp Lífið Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Lífið Þorsteinn Víglunds selur Kjartanshöll í Garðabænum Lífið Lil Wayne trúlofaður 03-módeli Lífið Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Lífið Fleiri fréttir Norðmenn gerðu símaat í Trévirki: „Ég er ingen kúnna um þetta“ Eiður auglýsir tyrkneska hárígræðsluklíník Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Þorsteinn Víglunds selur Kjartanshöll í Garðabænum Lil Wayne trúlofaður 03-módeli Matthías Már með krabbamein Risastór tappakollur í fallegri íbúð Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Nadine og Þórhildur byrja með nýtt hlaðvarp Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sjá meira