Vaðlaugin tæmd og skýringa leitað Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 20. janúar 2015 13:44 Elín telur ólíklegt að sárin hafi hlotist af völdum gúmmísins, hugsanlega sé um að ræða viðkvæma húð barnsins. Hún fullyrðir þó ekkert og leitar nú skýringa.
Vaðlaugin í Sundlaug Akureyrar var í dag tæmd eftir að ábending barst um að tveggja ára barn hefði hlotið slæm sár á fæti eftir ferð í laugina. Skýringa verður leitað og laugin tekin í yfirhalningu. Elín H. Gísladóttir, forstöðukona Sundlaugar Akureyrar, segir að eins konar gúmmíefni sé á botni laugarinnar, en það hafi alla tíð verið talið barnvænt efni. Þetta sama efni hafi verið notað undanfarin tuttugu ár og því fátt sem bendi til þess að barnið hafi hlotið sárin af völdum þess. „Efnið er talið barnvænt og valið sérstaklega til þess. En við erum með málið í skoðun og ætlum að reyna að finna ástæðu fyrir að þetta hafi orðið,“ segir Elín.Sjá einnig: Tveggja ára hlaut slæm sár á fæti eftir sundferðÁður hafði drengurinn hlotið sár eftir ferð í sundlaugina. Þau voru þó vægari, eins konar nuddsár, og gerði móðir drengsins, Petra Sif Stefánsdóttir, starfsmönnum sundlaugarinnar vart við. Sár drengsins eftir ferð hans í laugina í gær eru afar ljót og birti Petra mynd af þeim á Facebook-síðunni Múttur á Akureyri. Fleiri mæður höfðu þar sömu sögu að segja en Elín segist aldrei hafa fengið ábendingu þess efnis áður. „Ég hef aldrei heyrt neitt svona áður og þess vegna kemur þetta mér mjög á óvart. Svona gúmmíefni hefur verið hér í að nálgast tuttugu ár,“ segir Elín. Húð barna geti þó verið viðkvæm og hugsanlega sé það raunin í þessu tilfelli. Hún vilji þó ekkert fullyrða. Þá segir hún að nú verði beðið eftir fagaðilum til að yfirfara vaðlaugina og að þangað til verði hún lokuð. Það hafi þó verið á stefnuskránni að taka vaðlaugina í yfirhalningu í byrjun árs „Við bara vonum að við finnum ástæðuna og ef eitthvað þarf að lagfæra þá gerum við það.“
Tengdar fréttir Tveggja ára hlaut slæm sár á fæti eftir sundferð á Akureyri Nokkrir foreldrar í bænum segja börn sín hafa fengið nuddsár eftir heimsókn í laugina. Skipt var um gúmmíefni í pottum í vetur. 19. janúar 2015 21:45 Mest lesið Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Erlent „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Innlent Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Fleiri fréttir Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Sjá meira
Tveggja ára hlaut slæm sár á fæti eftir sundferð á Akureyri Nokkrir foreldrar í bænum segja börn sín hafa fengið nuddsár eftir heimsókn í laugina. Skipt var um gúmmíefni í pottum í vetur. 19. janúar 2015 21:45