„Brotin byrjuðu fermingarsumarið mitt“ Aðalsteinn Kjartansson skrifar 21. janúar 2015 22:29 Frá Grímsey. Vísir/Pjetur „
Brotin byrjuðu fermingarsumarið mitt, þá var ég 14 ára,“ segir Valgerður Þorsteinsdóttir, 21 árs gömul kona, sem kært hefur mann í Grímsey fyrir kynferðisbrot, í samtali við Akureyri Vikublað sem kemur út á morgun. Valgerður segist hafa orðið fyrir margítrekaðri kynferðislegri misnotkun af hálfu manns þegar hún vann sem barn úti í eynni. Þann 15. janúar staðfesti lögreglan á Akureyri við Vísi að eitt meint kynferðisbrotamál væri til rannsóknar í Grímsey. Þeirri rannsókn væri lokið og farið til ríkissaksóknara sem tekur afstöðu um hvort gefin verði út ákæra eða málið látið niður falla. Valgerður er sú sem kærði málið til lögreglu.Akureyri vikublað greindi fyrst frá málinu og setti í samhengi við brothætt atvinnuástand og byggð í Grímsey. Hafði blaðið eftir ónafngreindum heimildarmanni að hinn kærði ætti ekki afturkvæmt til Grímseyjar og ef þeir sem vilja áfram útgerð í Grímsey hafi ekki burði til að kaupa kvóta mannsins gæti það haft mikil áhrif. Í viðtalinu sem birtist í blaði morgundagsins segir Valgerður að brotin hafi byrjað þegar hún var á fermingaraldri og að það hafi ekki verið fyrr en hún var orðin 17 ára gömul sem hún þorði að neita að hitta manninn. „Þá fæ ég einhvern styrk og hef náð þroska til að segja manninum að hætta, þá er ég að verða fullorðin og gat sagt nei. Þegar maður er 14 ára er erfiðara að segja nei,“ segir hún. Lesa má viðtalið í vefútgáfu blaðsins hér.
Tengdar fréttir Kynferðisbrotamál í Grímsey Rannsókn málsins er lokið og það komið til ríkissaksóknara. 15. janúar 2015 13:04 Mest lesið Gular viðvaranir og allt að tuttugu og sjö stig Veður Lindsey Graham er látinn Erlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Innlent Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Innlent Íran og Bandaríkin skiptast á árásum Erlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Innlent Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Innlent Var látin í sólarhring áður en hún fannst Erlent Fleiri fréttir Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Sjá meira
Kynferðisbrotamál í Grímsey Rannsókn málsins er lokið og það komið til ríkissaksóknara. 15. janúar 2015 13:04