Vinna að frumvarpi til að bæta réttarstöðu þolenda í nauðgunarmálum Stefán Árni Pálsson skrifar 28. janúar 2015 17:40 Markmið frumvarpsins verði að bæta úr þessu og styrkja stöðu brotaþola. Getty
Þingflokkur Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs vinnur að undirbúningi frumvarps til breytinga á lögum um meðferð sakamála sem miða að því að bæta réttarstöðu brotaþola í nauðgunarmálum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá flokknum. Þar segir að ábendingar hafi komið um þörf fyrir úrbætur á þessum vettvangi, m.a. í nýlegri greinargerð Hildar Fjólu Antonsdóttur, Viðhorf fagaðila til meðferðar nauðgunarmála innan réttarvörslukerfisins og tillögur að úrbótum. „Brotaþolar í nauðgunarmálum hafa mikilvægra og réttmætra hagsmuna að gæta, en þar sem nauðgunarmál eru rannsökuð og sótt af hinu opinbera eiga brotaþolar ekki aðild að þeim. Brotaþolar hafa því takmarkaða möguleika á að koma sínum sjónarmiðum að og fá ekki fyllstu upplýsingar um gang máls í réttarkerfinu,“ segir í tilkynningunni. Markmið frumvarpsins verði að bæta úr þessu og styrkja stöðu brotaþola með því að auka aðgang hans að upplýsingum á öllum stigum máls, veita rétt til að hlýða á málflutning fyrir dómi, gefa yfirlýsingu um málavexti, koma athugasemdum á framfæri og gefa lokayfirlýsingu fyrir dómi. „Sambærilegar breytingar hafa verið gerðar á sakamálalöggjöf á Norðurlöndum á undanförnum árum í því skyni að treysta stöðu brotaþola í nauðgunarmálum. Tímabært er að uppfæra íslenska löggjöf í þessum mikilvæga málaflokki og mun VG leggja frumvarp sitt fram nú í vor og vonast eftir góðum undirtektum við það á Alþingi.“
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Fleiri fréttir Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Sjá meira