Innlent

Læknar fá að minnsta kosti 20% launahækkun

Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar
Þorbjörn Jónsson er formaður Læknafélags Íslands.
Þorbjörn Jónsson er formaður Læknafélags Íslands. Vísir/GVA
Læknar fá að minnsta kosti tuttugu prósent launahækkun með samþykkt nýs kjarasamings. Yfirgnæfandi meirihluti lækna samþykkti samninginn í atkvæðagreiðslu sem lauk á miðnætti. Þá felur hann í sér frekari launahækkanir fyrir hluta lækna.

Bæði Læknafélag Íslands og Skurðlæknafélagið undirrituðu nýja kjarasamninga fyrir rúmri viku. Atkvæðagreiðslum um samingana lauk svo á miðnætti og voru báðir samþykktir. Samningur Læknafélagsins og ríkisins var samþykktur með ríflega níutíu prósent atkvæða. Hann felur í sér töluverðar launahækkanir fyrir lækna.

„Þeir sem eru að fá minnst fá kannski um það bil tuttugu prósenta hækkun á sínum launum á samningstímanum en hækkunin er mjög misjöfn,“ segir Þorbjörn Jónsson, formaður Læknafélags Íslands. Hann segir aukið tillit tekið til menntunar og ábyrgðar og þá hafi það einnig áhrif á launin hversu oft menn taki vaktir. „Þannig að læknar koma mjög mismunandi prósentulega út úr þessu,“ segir Þorbjörn.

Sjá einnig: Launafólk getur ekki búist við jafn miklum launahækkunum og læknar

Samingurinn er til þriggja ára eða frá því síðasta sumar til vorsins 2017. Í honum er meðal annars gert ráð fyrir launapottum sem stjórnendur hverrar heilbrigðisstofnunar fyrir sig sjá um að deila út og því fá sumir læknar nokkuð meira en tuttugu prósenta launahækkun.

„Við vonum það auðvitað að þessi samningur verði til þess að draga lækna heim frá útlöndum. Það verður auðvitað tíminn að leiða í ljós hvort að samingurinn dugar til þess,“ segir Þorbjörn. Hann segist ekki geta svarað því hvort að þeir læknar sem sögðu upp störfum vegna kjaradeilu þeirra og ríksins dragi uppsagnir sínar til baka. „Auðvitað vona ég það að sem flestir geri það.“


Tengdar fréttir

Læknasamningarnir gerðir við sérstakar aðstæður

Viljayfirlýsing Læknafélagsins, Skurðlæknafélagsins og ríkisstjórnarinnar um uppbyggingu heilbrigðiskerfisins var undirrituð í gær. Auka á fjármagn til heilbrigðiskerfisins og gera það samkeppnishæft.

Læknar samþykktu nýjan kjarasamning

Læknar hafa samþykkt nýjan kjarasamning við ríkið með ríflega 90% atkvæða. Nýr kjarasamingur var undirritaður á milli Læknafélags Íslands og ríkisins þann 7. janúar og lauk atvkæðagreiðslu um samninginn á miðnætti.

Mesta ógn á vinnumarkaði um áratugaskeið

Framkvæmdastjóri SA segir stöðuna á vinnumarkaði grafalvarlega og að 30 % launahækkun yfir línuna væri ávísun á kollsteypu hagkerfisins með gengisfellingum og óðaverðbólgu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×