Stílhreinu einbýlishúsahverfi breytt í klasturslegan bræðing segir í kæru Garðar Örn Úlfarsson skrifar 12. mars 2015 10:15 Húseigandi í Austurkór sagði það hafa vegið þungt er hann keypti byggingarrétt að úthlutað hafi verið glæsilegum einbýlishúsalóðum. Fréttablaðið/Valli
Húseigandi í Austurkór telur Kópavogsbæ hafa reynt að færa eigið tjón yfir á húseigendur með því að fjölga parhúsum og íbúðum í blokkum í hverfinu eftir að einbýlishúsalóðum hafi verið skilað inn. Í kæru eigenda einbýlishúss í Austurkór á hendur Kópavogsbæ vegna breytinga á skipulagi hverfisins til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála er vísað til þess að upprunalega hafi svæðið að stórum hluta átt að fá yfirbragð sérbýlishúsabyggðar. Með fjölgun íbúða myndi umferð um götu hans aukast verulega. „Einkum hafi verið úthlutað glæsilegum einbýlishúsalóðum sem skapað hafi ákveðið byggðarmynstur og hafi það vegið þungt í ákvörðun kæranda um að kaupa byggingarrétt,“ segir í umfjöllun úrskurðarnefndarinnar um rök kærandans. „Í stað stílhreins einbýlishúsahverfis verði til mjög óstílhreinn bræðingur húsa sem líti klasturslega út.“ Kópavogsbær sagði hins vegar að ekki væri á nokkurn hátt hróflað við eign kærandans. „Stærð lóðar hans og byggingarskilmálar séu hinir sömu og áður, útsýni sé ekki skert með skipulagsbreytingunni og skuggavarp á lóð hans sé ekki meira en áður hafi verið gert ráð fyrir,“ segir nefndin meðal annars um sjónarmið bæjarins. Kærunefndin sagði sveitarstjórnir hafa vald til að þróa byggð í samræmi við lög. Fyrra deiliskipulag hafi gert ráð fyrir 139 íbúðum en hið nýja 161 íbúð. Þá væri áætluð aukning umferðar um 16 prósent ekki talin veruleg. Kröfu kærandans um ógildingu nýja skipulagsins væri því hafnað.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Á spítala eftir misheppnaða aftöku Erlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Innlent Fleiri fréttir Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti Sjá meira