Vilja skipta út þremur 15 hæða húsum fyrir 18 hæða turn Garðar Örn Úlfarsson skrifar 10. júlí 2015 07:00 Kex-hostel verður óhult á Skúlagötu 28 samkvæmt skipulagstillögu Fréttablaðið/GVA „
Á forsendum úrelts skipulags telur borgin sig skuldbundna til að koma fyrir byggingarmagni sem engan veginn samræmist markmiðum aðalskipulagsins,“ bókaði Magnea Guðmundsdóttir úr Bjartri framtíð sem sat hjá þegar aðrir fulltrúar í skipulagsráði borgarinnar samþykktu að láta auglýsa tillögu eigenda um breytt deiliskipulag á Barónsreit. „Gildandi deiliskipulag gerir ráð fyrir stórfelldu niðurrifi gamalla timburhúsa við Laugaveg og Hverfisgötu og á baklóðum við Vitastíg. Nýja tillagan kveður á um að flest þessara húsa haldi sér auk þess sem lögð er sérstök áhersla á að styrkja timburhúsaþyrpingu við Vitastíg og tengja hana, með nýjum stíg, við Laugaveg, Hverfisgötu og Bjarnaborg,“ bókuðu fulltrúar allra flokka nema Bjartrar framtíðar. Þá er bent á að gildandi deiliskipulag geri ráð fyrir þremur fimmtán hæða turnum við Skúlagötu og háum tengibyggingum milli þeirra. Það heimilar einnig niðurrif Skúlagötu 28 þar sem Kex hostel er. Samkvæmt nýju tillögunni verður einn átján hæða turn við Skúlagötu og Skúlagata 28 heldur sér þannig að byggja megi tvær hæðir ofan á húsið.Magnea Guðmundsdóttir„Við teljum að skipulagstillagan sé mun betri en gildandi deiliskipulag. Engu að síður teljum við að byggingarmagn við Skúlagötu sé of mikið. Við leggjumst gegn því að turninn verði átján hæðir og teljum að hann eigi að vera sextán hæðir að hámarki og ekki meira en sextíu metrar á hæð frá sjó,“ segir í bókun fulltrúans. Enn fremur er sagt „nauðsynlegt að tryggt verði að húsin milli Hverfisgötu og Laugavegs verði íbúðarhús og einnig húsin sem standa norðanmegin við Hverfisgötu og stölluðu húsin neðst við Vitastíg“. Magnea Guðmundsdóttir, sem er arkitekt, bókaði að ákjósanlegra væri að draga meiri lærdóm af eldra skipulagi við Skúlagötu þar sem háir turnar loki inni eldri byggð frá sjávarsíðunni og taki ekki tillit til samspils byggðar og landslags þar fyrir. „Gríðarlegt byggingarmagn leiðir af sér djúpa kroppa þar sem erfitt er að koma dagsljósi að bæði í innri og ytri rýmum og dregur verulega úr gæðum þeirra. Hægt hefði verið að draga úr þessum áhrifum með því að dreifa betur byggingarmagni beggja vegna Hverfisgötu,“ segir í bókun Magneu Guðmundsdóttur.
Mest lesið Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Fleiri fréttir Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Sjá meira