Jón Sigurðsson hefði verið traustur stuðningsmaður femínista 17. júní 2015 18:53 Steinunn Stefánsdóttir varaformaður Kvenréttindafélags Íslands flutti ræðuna á Hrafnseyri í dag. MYND/KVENRÉTTINDAFÉLAG ÍSLANDS „
Mín skoðun er sú að meðan við erum alltaf og eingöngu að glíma við afleiðingar kynjamisréttis en ekki orsakir þess að þá gerum við aldrei betur en að halda í horfinu og sjá hlutina mjakast áfram, það er að segja, við munum aldrei ná fullu jafnrétti kynja ef ekki verður farið að vinna af fullum þunga í orsökum þess,“ sagði Steinunn Stefánsdóttir varaformaður Kvenréttindafélagsins í hátíðarræðu á Hrafnseyrarhátíð í dag. Löng hefð er fyrir hátíðahöldum á Hrafnseyri en þar fæddist Jón Sigurðsson, þann 17. júní árið 1811 og jafnan er flutt hátíðaræða að því tilefni. Í ár féll það í skaut Steinunnar að flytja töluna. Hún sagðist sannfærð um það að Jón hefði stutt kosningarétt kvenna af heilum hug hefði hann verið uppi 1915 en Íslendingar fagna því í ár að 100 ár eru liðin frá því að konur hlutu kosningarétt. „Og þó að það þjóni vitanlega litlum tilgangi að velta því fyrir sér hver sýn Jóns Sigurðssonar væri á jafnrétti kynjanna, væri hann samtíðarmaður okkar, þá verð ég að segja að ég hef trú á því að frelsishetjan Jón væri einlægur fylgismaður kvenréttinda væri hann meðal okkar í dag, kannski ekki beinlínis virkur í hreyfingu femínista en traustur stuðningsmaður,“ sagði Steinunn. Hún sagði að þrátt fyrir að mikið hefði áunnist á þeirri sem liðin eru frá því að íslenskar konur fengu kosningarétt væri enn langt í land í jafnréttismálum hér á landi. „Launamunur kynja er viðvarandi og óþolandi. Valdahlutföll milli kynjanna endurspegla ekki hlutföll milli kynja í samfélaginu, hvorki í stjórnsýslunni né í fyrirtækjum. Og margvíslegt ofbeldi sem konur verða fyrir er í raun furðulegt í samfélagi sem telst vera siðað,“ sagði Steinunn máli sínu til stuðnings. Að mati Steinunnar verður menntakerfið að gegna lykilhlutverki í baráttunni gegn kynjabilinu í samfélaginu. „Árangurinn af kynjafræðikennslu í framhaldsskólum blasir við. Þar hafa augu ungmenna opnast. Mörg þeirra sjá beinlínis heiminn í nýju ljósi. Þau stofna með sér femínistafélög og halda áfram að ræða málin sín á milli og vekja athygli á mismunandi birtingarmyndum kynjabilsins. Það skal enginn segja mér annað en að ungmenni sem hafa stundað þetta nám og tekið þátt í umræðu um stöðu kynjanna mæti fullorðinsárunum með haldgott veganesti til þess að lifa sínu fullorðinslífi öðruvísi en foreldrar þeirra gerðu.“ Ræðu Steinunnar í heild sinni má nálgast á vef Kvennréttindafélagsins.
Mest lesið Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Erlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Segir upp eftir tvær vikur í starfi Innlent Fleiri fréttir „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Sjá meira