Taka undir áskorun um gjaldfrjálsan skóla Svavar Hávarðarson skrifar 24. ágúst 2015 07:30 Algengt er að foreldrar kaupi skólagögn fyrir um 7.000 krónur fyrir hvert barn – en skólataska og fleira er þá ótalið. Fréttablaðið/Vilhelm
Heimili og skóli – landssamtök foreldra taka undir áskorun Barnaheilla – Save the Children á Íslandi um gjaldfrjálsan grunnskóla á Íslandi. Fjölskyldur með börn á grunnskólaaldri greiða töluverðar upphæðir vegna kaupa á námsgögnum. Eins og Fréttablaðið greindi frá á föstudag sendu samtökin Barnaheill – Save the Children á Íslandi frá sér áskorun til sveitarfélaga og ráðamanna og leggja til að 31. grein grunnskólalaga verði breytt í því augnamiði að tekið verði fyrir alla gjaldtöku og þannig verði grunnskólinn í raun gjaldfrjáls eins og kveðið er á um í Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.Hrefna SigurjónsdóttirHrefna Sigurjónsdóttir, framkvæmdastjóri Heimilis og skóla, segir í skriflegu svari til Fréttablaðsins að samtökin taki undir áskorunina og fagni frumkvæði Barnaheilla, því líkt og segi í áskoruninni eiga öll börn rétt á grunnmenntun án endurgjalds samkvæmt Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, sem Ísland hefur lögfest. Þar er jafnframt kveðið á um að ekki megi mismuna börnum sökum stöðu þeirra eða foreldra þeirra, svo sem vegna efnahags. Lengi hefur tíðkast að foreldrar fá senda innkaupalista frá skólunum um kaup á námsgögnum, sem samtökin bæði telja ganga þvert á lög og alþjóðasamþykktir. Hrefna nefnir að talsverður kostnaður geti leynst í þessum innkaupalistum. „Ef skoðaðir eru t.a.m. innkaupalistar á netsíðum þá getur kostnaður þar verið á bilinu 2.500-7.500 kr. fyrir barn í 1. bekk. Þá er skólataska ekki meðtalin. Þegar fleiri en eitt barn eru í fjölskyldunni eykst kostnaðurinn. Þá má einnig velta fyrir sér kostnaði við skólamáltíðir og frístundaheimili sem eru líka rekin af sveitarfélögunum.“ Í lögum um grunnskóla frá 2008 (nr. 91, 31. gr) kemur fram að kennsla í skyldunámi í opinberum grunnskólum skuli veitt nemendum þeim að kostnaðarlausu og er óheimilt að krefja þá eða foreldra þeirra um greiðslu fyrir kennslu, þjónustu, námsgögn eða annað efni sem nemendum er gert skylt að nota í námi sínu. Þó kemur fram í lögunum að opinberum aðilum sé ekki skylt að leggja nemendum til gögn til persónulegra nota, svo sem ritföng og pappír, án þess að í raun sé skilgreint hvað persónuleg not þýðir. „Við tökum undir þann skilning Barnaheilla að öll gögn sem nemandi þarf að nota til skólagöngu sinnar séu í raun hluti af námsgögnum en ekki svokölluð persónuleg gögn. Því ætti skólinn með réttu að útvega þau gögn sem nemandi þarf til að stunda nám sitt,“ segir Hrefna.
Mest lesið Biðlar til leigjenda að áframselja ekki úr Góða hirðinum Innlent Troðfullur strætó ók fram hjá Kristrúnu sem fékk ekki pláss Innlent Hættu við að taka á loft vegna fugls sem hafnaði á vélinni Innlent Þyrlan sækir mann eftir hestaslys Innlent Hafnaði úti í fjöru Innlent Virtu ekki lokanir vegna Gleðigöngunnar Innlent Forstjórinn ræður hvort upptökur úr búkmyndavélum verði birtar Erlent Klukkustundar löng röð í öryggisleitina: Á hlaupum í átt að hliðinu Innlent Gefur aftur í skyn að hann vilji embættið á ný Erlent Stelpurnar fái sambærilega upplifun og strákarnir Innlent Fleiri fréttir Þyrlan sækir mann eftir hestaslys Hættu við að taka á loft vegna fugls sem hafnaði á vélinni Troðfullur strætó ók fram hjá Kristrúnu sem fékk ekki pláss Virtu ekki lokanir vegna Gleðigöngunnar Stelpurnar fái sambærilega upplifun og strákarnir Biðlar til leigjenda að áframselja ekki úr Góða hirðinum Beint streymi frá Gleðigöngunni Sakar rektor um að hindra upplýsingamiðlun til þjóðarinnar Óskhyggja að vona að afgerandi svar fáist þann 29. ágúst Óskhyggja að vonast eftir afgerandi svari og deilan harðnar 72 ár síðan síðast en 170 ár þar til næst Slökkvilið brást við tilkynningu um reyk Hafnaði úti í fjöru Klukkustundar löng röð í öryggisleitina: Á hlaupum í átt að hliðinu Endaði út af eftir framúrakstur Baudenbacher úthýst úr hátíðarsal háskólans Hátt í sjö hundruð komast ekki á kjörskrá í tæka tíð Sjö hundruð fá ekki að greiða atkvæði og bókstafirnir burt Ný fjarskiptakerfi séu viðkvæmari hvað varðar útbreiðslu Brotist inn á meðan húsfrúin var heima: „Lífið er aðeins verra eftir þetta“ Hægt að nálgast staðarspár fyrir almyrkvaslóðir á sérstöku spásvæði Heimabærinn borgar fyrir útför Gunnars að hluta Einkunnir verða birtar í tölustöfum í stað bókstafa Tilkynningum um innbrot fjölgar á ný ESB vill „skapandi lausnir“ fyrir íslenskan sjávarútveg Óvissa með sólmyrkvaveður Götulokanir vegna Gleðigöngunnar taka gildi í dag Stækkunarstjórinn boðar „skapandi lausnir“ fyrir Íslendinga Hommar komi verst út þegar kemur að mismunun launa Hvernig er myrkvinn þann 12. ágúst ólíkur þeim sem var árið 2015? Sjá meira