Meintur nauðgari fælir samfanga úr vinnunni Nadine Guðrún Yaghi skrifar 24. ágúst 2015 23:15 Að sögn fangans beittu samfangar hans hann kynferðislegu ofbeldi í klefa sínum og í sturtu klefa fangelsisins. vísír/stefán „
Í tilviki eins og þessu, þar sem vaknar minnsti grunur um kynferðislega misnotkun innan veggja fangelsisins, er það alltaf tilkynnt til lögreglu. Í varnaðarskyni þá aðskiljum við einstaklinga sem koma að máli,“ segir Margrét Frímannsdóttir, forstöðumaður fangelsisins á Litla-Hrauni. Þar telur fangi sig beittan misrétti með því að einstaklingur, sem hann sakar um að hafa beitt sig kynferðislegri misnotkun, hafi fengið starf á vinnustað hans. Fyrir um tveimur árum tilkynnti Margrét til lögreglunnar á Selfossi að grunur léki á að umræddur fangi væri beittur kynferðislegri misnotkun af tveimur samföngum sínum. Lögreglan hóf rannsókn á málinu. Mennirnir voru skildir að og hafa ekki verið á sama gangi í fangelsinu síðan. Fanginn segir samfanga sína hafa beitt hann kynferðislegu ofbeldi í klefa hans og í sturtuklefa.Margrét Frímannsdóttirvísir/gvaFékk starf á vinnustað fangans Á dögunum fékk svo annar meintra gerenda starf á vinnustað fangans á Litla-Hrauni. Út af þessu segist fanginn finna fyrir mikilli vanlíðan. Hann geti ekki unnið með manni sem misnotað hafi hann kynferðislega og hefur hætt að mæta í vinnuna. Margrét segir að fyrir tveimur árum hafi vaknað grunur við eftirlit starfsmanna og svo hafi aðrir bent á að brot kynnu að vera að eiga sér stað. „Lögreglunni var strax tilkynnt um málið og rannsókn lauk svo því meintur brotaþoli neitaði mjög eindregið að nokkuð hefði átt sér stað,“ segir hún. Hefði brot verið staðfest þá hefðu gerendurnir hins vegar undantekningarlaust verið fluttir í annað fangelsi. „Þá eru verkstjórar yfir föngunum allan tímann í vinnunni. Ef fanginn leggur hins vegar fram kvörtun yrði rætt við hann og ákvörðun tekin eftir þörfum.“ Fanginn segist hafa neitað brotunum við skýrslutöku hjá lögreglu vegna ótta við hefndaraðgerðir mannanna.Fangar hneykslaðir „Þegar þetta tilvik kom upp þá var ekki búið að breyta reglunum þannig að fangar máttu vera inni á klefum hver hjá öðrum,“ segir Margrét og bætir við að þegar ofbeldi eigi sér stað innan veggja fangelsisins þá sé það oftast inni á klefum þar sem engar öryggismyndavélar eru. „Auðvitað er það skerðing á lífsgæðum fanganna að þeir megi ekki vera í klefum hver annars því þeir voru oftast þar bara í saklausum tilgangi. Því miður þá koma upp tilvik sem verða til þess að þetta er bannað.“ Aðrir fangar á Litla-Hrauni sem rætt var við eru hneykslaðir á stöðunni. Burtséð frá því hvernig gangi að sanna brot þá eigi ekki að setja meintan brotamann og fórnarlamb saman í vinnu.
Mest lesið „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Innlent Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Innlent Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Innlent Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Innlent Herinn sé reiðubúinn að tortíma Íran verði Trump ráðinn af dögum Erlent „Ef þú ætlar austur verður þú að fara Norðurleiðina“ Innlent Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Innlent Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Innlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður Fleiri fréttir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara Norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Vegagerðin varar við vindi Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Sjá meira