Hæstu laun í vinnuskólum sjöfalt hærri en þau lægstu Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 27. júní 2015 09:00 Miklu munar á launum í vinnuskólum sveitarfélaga landsins.
Börn fædd árið 1999 sem vinna í vinnuskóla Fjarðabyggðar eiga möguleika á að vinna sér inn tæplega sjö sinnum meiri pening en jafnaldrar þeirra í vinnuskóla Hafnarfjarðar í sumar. Þetta kom í ljós við úttekt Fréttablaðsins á launum starfsmanna vinnuskóla ellefu sveitarfélaga á landinu. Við úttektina kom í ljós að mikill munur er á launakjörum starfsmanna vinnuskóla sveitarfélaganna í sumar og virðist lítil samræming vera milli sveitarfélaga. Munur er milli sveitarfélaga í launum og launamun árganga. Einnig er mikill munur á því hversu marga tíma árgangarnir fá að vinna auk þess sem sveitarfélögin dreifa tímanum ójafnt á árganga. Sums staðar fá árgangar jafnmarga tíma en annars staðar er munurinn meira en þrefaldur. Tímakaup starfsmanna í Fjarðabyggð fæddra 1999 er að sama skapi næstum tvöfalt tímakaup starfsmanna í Garðabæ fæddra 1999. Austfirðingurinn fær 1101 krónu á tímann en Garðbæingurinn 580 krónur. Sveitarfélögin sem úttektin nær til eru sveitarfélög höfuðborgarsvæðisins auk Ísafjarðarbæjar, Árborgar, Akureyrar, Fjarðabyggðar og Reykjanesbæjar.Þeir starfsmenn vinnuskólanna sem Fréttablaðið ræddi við kvöddust ánægðir með vinnuna og sögðu hana betri en enga. Sömuleiðis sögðu þeir ágætt að hafa eitthvað kaup, sem þó mætti vera betra. Starfsmenn vinnuskólans í Fjarðabyggð fá hæsta tímakaupið í öllum aldursflokkum sem úttektin nær til, það er að segja börn fædd frá árinu 1999 til 2001. Lægsta kaupið hjá starfsmönnum fæddum 1999 og 2000 fá börn í Garðabæ en börn fædd 2001 fá minnst í Hafnarfirði. Sömuleiðis fá starfsmenn mismargar klukkustundir af vinnu yfir sumarið. Elsti árgangurinn fær mest í Fjarðabyggð, 280 klukkustundir, en minnst í Hafnarfirði, 78 klukkustundir. Árgangurinn fær ekki vinnu á Akureyri.Uppfært 11:00 Það er ekki rétt eins og kemur fram hér að ofan að árgangurinn fái ekki vinnu á Akureyri. Þeir unglingar fá allt að 180 klukkustundir yfir sumarið. Börn fædd 2000 fá mesta vinnu í Árborg, 182 klukkustundir, en minnsta í Hafnarfirði, 78 klukkustundir. Yngsti árgangurinn fær mesta vinnu í Ísafjarðarbæ, 120 klukkustundir, en minnsta í Mosfellsbæ, 52 klukkustundir. Árgangurinn fær hvorki vinnu í Reykjavík né Reykjanesbæ. Heildarlaun möguleg eru langhæst hjá elsta árgangnum í Fjarðabyggð, rúmar 300 þúsund krónur. Næsthæst heildarlaun fá jafnaldrar þeirra í Árborg, rúmar 140 þúsund krónur. Lægstu heildarlaunin fá börn fædd 2001 í Mosfellsbæ, um 20 þúsund krónur. Næstlægst heildarlaun fá jafnaldrar þeirra í Hafnarfirði, rúmar 30 þúsund krónur. Öll börn sem sóttu um starf í vinnuskólum sveitarfélaganna fengu störf í ár.
Mest lesið Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Innlent Fleiri fréttir Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Sjá meira