Rannsókn íslensks læknis: Óvinnufærir vegna löngunar til kynlífs Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar 26. febrúar 2015 07:00 Monika Emilsdóttir segir að rannsókn hennar hafi staðfest grun um að þeir sem haldnir séu ofsalegri kynlífslöngun séu vansælir.
Margir danskir karlar, sem haldnir eru ofsalegri kynlífslöngun, stunda sjálfsfróun í 10 til 15 klukkustundir á dag til að draga úr andlegri vanlíðan sinni. Þeir eru því í raun óvinnufærir. Margir eru í þremur til fjórum samböndum og sumir í allt að 10 til 20 samböndum. Þetta er niðurstaða rannsóknar íslensks læknis, Moniku Emilsdóttur, sem gerð var í samvinnu við starfsmenn sérstakrar deildar Geðspítalans í Kaupmannahöfn (Sexologisk klinik, Psykiatrisk Center København) þar sem tekið er á vanda sem tengist kynlífi á einn eða annan hátt. Niðurstöðurnar hafa vakið mikla athygli í Danmörku. Um var að ræða lokaverkefni Moniku í læknanáminu, að því er hún greinir frá í samtali við Fréttablaðið. Hún segir að rannsakaðir hafi verið 156 karlar sem vísað hafi verið til geðdeildarinnar frá heimilislæknum, sálfræðingum og geðlæknum. „Við fengum staðfestan þann grun að þeir sem haldnir eru þessari ofsalegu kynlífslöngun séu mjög vansælir. Það er hægt að flokka þá með þunglyndissjúklingum og þeir leita í kynlíf til að flýja veruleikann.“ Monika, sem starfar sem læknir á Kaupmannahafnarsvæðinu og stefnir á nám í geðlækningum, segir þessa karla þurfa að viðhalda spennunni í lífi sínu á þennan hátt. „Um leið og þeir eru búnir að fá fullnægingu sökkva þeir niður í eymdina. Þess vegna halda þeir sér á floti með kynlífi í svona margar klukkustundir á sólarhring. En þátttakendur í rannsókninni voru þeir sem eru allra verst haldnir af kynlífslöngun.“ Rannsóknin leiddi í ljós að 20 prósent karlanna höfðu verið beitt kynferðislegu ofbeldi. „Allt bendir til að flestir séu bugaðir af einhverju og leiti í kynlíf alveg eins og alkóhólistar leita í áfengi.“ Monika getur þess jafnframt að önnur rannsókn, sem nú er í gangi, bendi til að enginn munur sé á magni karlkynshormóna karla með ofsalega kynlífslöngun og annarra karla. Hópmeðferð hefur verið notuð til að hjálpa körlunum auk þess sem þeir fara í viðtöl hjá sálfræðingum og geðlæknum, að því er Monika greinir frá. „Það þarf að vinna með það sem gerir það að verkum að þeir leita svona mikið í kynlíf. Þeir þurfa að læra að lifa með þessu. Það er ekki hægt að segja að þeir megi aldrei stunda kynlíf aftur.“
Mest lesið Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Innlent Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu Innlent „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Innlent Myndband sýnir árás Diddy Erlent Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Innlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Innlent Fleiri fréttir Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Diskóstemming í Bíóhöllinni á Akranesi Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Framkvæmdir hafnar við brú yfir Fjarðarhornsá Segist kallaður „stríðsæsingarmaður“ vegna fyrirhyggju Sjúklingum Landspítala fjölgaði um 4.500 milli ára Skólastjóradrama í Kóraskóla fær óvæntan endi Bein útsending: Ársfundur Landspítala Sjá meira