Hafró: Aldrei mælst meira af makríl en í ár Atli Ísleifsson skrifar 11. ágúst 2015 09:52 Framundan er frekari úrvinnsla á gögnum frá leiðangrinum. Vísir/Óskar
Ekki hefur mælst meira af makríl innan íslenskrar efnahagslögsögu en í ár samkvæmt mælingum Hafrannsóknarstofnunar. Bráðbirgðaniðurstöður sýna mun meira magn og suðlægari útbreiðslu makríls sunnan við Ísland en undanfarin ár.Í frétt Hafró segir að í gær hafi rúmlega fimm vikna löngum leiðangri Árna Friðrikssonar lokið, en leiðangurinn hafði það megin markmið að meta magn og útbreiðslu makríls umhverfis Ísland og við Grænland. „Verkefnið er hluti af sameiginlegum rannsóknum Íslendinga, Norðmanna, Færeyinga og Grænlendinga á dreifingu og magni helstu uppsjávartegunda í Norðaustur-Atlantshafi ásamt athugunum á magni átu og umhverfisþáttum á svæðinu. Þetta var sjöunda sumarið sem þessi leiðangur er farinn og í þriðja sinn sem Árni Friðriksson er fenginn til að rannsaka grænlenska hafsvæðið í þessum tilgangi, en 12 dögum var varið í rannsóknir þar. Í leiðangrinum fóru einnig fram hvalatalningar, en víðtækar hvalatalningar hafa staðið yfir í N-Atlantshafi frá því í júní sl. Alls voru teknar 92 fyrirfram ákveðnar rannsóknastöðvar þar sem tekin voru stöðluð tog í efstu lögum sjávar með flottrolli til að meta magn makríls, en jafnramt voru framkvæmdar mælingar á umhverfisþáttum ásamt söfnun átusýna í háfa. Milli rannsóknastöðva var bergmálsgögnum safnað. Framundan er frekari úrvinnsla á gögnum frá leiðangrinum og munu helstu niðurstöður hans verða kynntar seinna í sameiginlegri skýrslu þeirra aðila sem að leiðangrinum komu. Bráðbirgðaniðurstöður sýna mun meira magn og suðlægari útbreiðslu makríls sunnan við Ísland en undanfarin ár.MYND/HAFRÓÞá var makríll fyrir öllu Vestur- og Austurlandi í svipuðu magni og fyrri ár, en lítils var vart norður af landinu. Samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðum er heildarmagn makríls á Íslandsmiðum meira en nokkru sinni frá því að athuganirnar hófust árið 2009. Við Grænland var makríl að sjá á stærsta hluta rannsóknasvæðisins og náði útbreiðsla hans allt suður fyrir Hvarf. Makríllinn var þó á þessu svæði hnappdreifðari en fyrri ár og magn hans minna. Síld fannst nokkuð víða á rannsóknasvæðinu, norsk-íslensk síld austur og norður af Íslandi og íslensk sumargotssíld fyrir sunnan og vestan.MYND/HAFRÓNorður af Íslandi var vart við töluvert magn norsk-íslenskrar síldar allt vestur að Horni, en svo vestarlega hefur síldin líklega ekki gengið síðan á 7. áratugi síðustu aldar. Skörun á útbreiðslu síldar og makríls var mest austan við land, en einnig töluverð á grunnslóð sunnan og vestan lands þar sem makríll var í bland við íslenska sumargotssíld.MYND/HAFRÓÍ þessum leiðangri var minni áhersla lögð á að kanna útbreiðslu kolmunna en makríls og síldar, en hann er að öllu jöfnu að finna á meira dýpi en togað var á. Líkt og fyrri ár fengust í leiðangrinum gagnlegar upplýsingar um útbreiðslu hrognkelsa í úthafinu. Hrognkelsi fengust víðast hvar á rannsóknasvæðinu.MYND/HAFRÓLeiðangursstjórar í leiðangrinum voru Sigurður Þ. Jónsson í fyrri hlutanum og Guðmundur J. Óskarsson í þeim seinni og skipstjórar voru Guðmundur Bjarnason í fyrri hlutanum og Kristján Finnsson í þeim seinni,“ segir í frétt Hafrannsóknarstofnunarinnar.
Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Fleiri fréttir Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Sjá meira