Akureyri á að vera kolefnishlutlaus bær sveinn arnarsson skrifar 18. maí 2015 07:00 Guðmundur Haukur Sigurðarson, verkefnisstjóri Vistorku.
Gera á Akureyri að kolefnishlutlausu sveitarfélagi í náinni framtíð. Stofnað hefur verið fyrirtækið Vistorka ehf. í eigu Akureyrarkaupstaðar þar sem markmiðið verður kortlagt. „Frumforsendan er að bera saman bæ með um 20.000 íbúa sem notar eingöngu jarðefnaeldsneyti sem orkugjafa, við bæ eins og Akureyri. Við undirbúning stofnunar Vistorku voru skoðuð áhrif þessara verkefna á kolefnisbókhald íbúa Akureyrarkaupstaðar,“ segir Guðmundur Haukur Sigurðarson, verkefnisstjóri hjá Vistorku. Akureyrarbær og Vistorka munu ráðast í aðgerðir sem stuðla að því að gera bæinn kolefnishlutlausan með því að nýta og endurvinna úrgang í samfélaginu, stuðla að umhverfisvænni samgöngum og ýta undir skógrækt og matjurtaræktun heimila. Kolefnishlutleysi snýst um að jafna út það magn koldíoxíðs sem leyst er út í andrúmsloftið með því að beisla það á aðra vegu, svo sem með endurnýtingu á orku. „Bæir í Evrópu af sömu stærð og Akureyri sem nota kol, olíu eða gas sem orkugjafa losa gróflega um 100 milljón kíló af koldíoxíði árlega,“ segir Guðmundur Haukur. „Þar sem öll upphitun húsnæðis á Akureyri er með jarðvarma og raforkunotkun einnig kolefnisfrí, lækkum við töluna okkar um 57 milljón kíló. Einnig flokka Akureyringar lífrænan úrgang og búa til úr því áburð. Því er aðeins um 30 milljón kíló eftir hjá okkur á Akureyri og er það fyrst og fremst vegna samgangna.“ Lækkun kolefnislosunar íbúa vegna samgangna þarf ekki að vera íþyngjandi fyrir íbúana að mati forsvarsmanna Vistorku. Ýmsar minni aðgerðir eru þegar hafnar, skógrækt mun nýtast, og hefur þegar gert, og ný vatnsaflsvirkjun á Glerárdal mun einnig nýtast til þess að knýja um 7.500 rafmagnsbíla í bænum.
Mest lesið Ekki lengur vafi á því hver hinn látni er Innlent Líkfundur við Austurbæjarskóla Innlent Umbúðirnar gallaðar og hakkið fer aftur í bakka Innlent Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Yfirlýsing Landskjörstjórnar: „Fullyrðing Morgunblaðsins er alfarið röng“ Innlent Hafa borið kennsl á hinn látna Innlent Flaug hvorki með gömlu né nýju Air Force One Erlent Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Viðskipti innlent Hóteláform Hreiðars strand vegna vegleysu Innlent Leita karlmanns á sjötugsaldri Innlent Fleiri fréttir Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Leita karlmanns á sjötugsaldri Fjórfalt fleiri lögreglumenn vakta Vestfirði Skemmdir á nýrri vatnsleiðslu til Eyja Leita svara við aldargamalli ráðgátu sólarinnar Gætu þurft að skila skyndibitaumbúðum Gripinn með stolið kreditkort og handtekinn Hafa borið kennsl á hinn látna Einn um borð þegar eldur kviknaði í fiskibát Kveikt á götulýsingu í sólmyrkva á stofnbrautum Líkfundur við Austurbæjarskóla Hólmbert bjargaði manni úr bíl sem stóð í ljósum logum í Kóreu Umbúðirnar gallaðar og hakkið fer aftur í bakka Gera ráð fyrir óvenjulangri aðalmeðferð í Reykholtsmálinu Tók konu kyrkingartaki nóttina eftir dóm og verður lengur í haldi Segir efnahagsmálin og verðbólguna að þróast í rétta átt Kristrún vísar ásökunum um sinnuleysi á bug Ekki lengur vafi á því hver hinn látni er Yfirlýsing Landskjörstjórnar: „Fullyrðing Morgunblaðsins er alfarið röng“ Vill að vinnu við gerð áhættumats verði flýtt Leita óþekkts árásarmanns á Þjóðhátíð Kæra varðhald þriðja mannsins til Landsréttar Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Þriðji maðurinn úrskurðaður í gæsluvarðhald Líkur á rigningu í Reykjavík þegar almyrkvinn gengur yfir Gæsluvarðhalds krafist yfir þriðja manninum Björgunarsveitir sinntu tveimur slösuðum ferðamönnum Hóteláform Hreiðars strand vegna vegleysu ,,Þetta eru kosningaherferðarfundir Kristrúnar Frostadóttur fyrir Já til að sjá'' Fyrir fólk sem búi á almyrkvaslóðinni sé nóg að „vera úti í garði og upplifa allt“ Sjá meira