Innlent

Björgunarskip kallað út: Trilla bilaði í innsiglingu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Myndin var tekinn í kvöld og er af trillunni.
Myndin var tekinn í kvöld og er af trillunni. mynd/ Ægir Þór Þórsson
Björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Rifi var kallað út í kvöld vegna trillu sem bilaði í innsiglingunni í höfnina. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsbjörgu.

Einn maður var um borð. Talin var nokkur hætta á ferð þar sem bátinn rak að landi og var björgunarskipið því kallað út á fyrsta forgangi.

Aðeins liðu fjórar mínútur frá því að útkallið barst og þar til björgunarskipið var komið að bilaða bátnum.

Bæði var stutt að fara og skipstjórinn var við vinnu við hafnarvigtina þegar kallið kom. Báturinn var tekinn í tog og dreginn til hafnar og var útkallinu lokið á um tuttugu mínútum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×