Beðið meðan ESA grúskaði guðsteinn bjarnason skrifar 16. mars 2015 07:15 Ríkið kaupir fjölmarga flugfarmiða á ári hverju handa starfsmönnum sínum, sem þurfa að erindast til útlanda í margvíslegum tilgangi. Fréttablaðið/Vilhelm
Fjármálaráðuneytið taldi ekki rétt að hefja útboð á flugfarmiðum á meðan Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, var enn að fjalla um málið. ESA tók farmiðaútboð ríkisins til umfjöllunar vegna kvörtunar sem barst frá flugfélaginu Iceland Express. Að sögn Elvu Bjarkar Sverrisdóttur, fjölmiðlafulltrúa fjármálaráðuneytisins, stóð aldrei annað til en að útboð á farmiðum vegna ferða ríkisstarfsmanna til og frá landinu færi fram að nýju. Þó sé ljóst að það verði gert með öðrum hætti en áður. „Hvað fyrirhugað útboð snertir hefur verið til skoðunar hvaða form væri heppilegast til að tryggja sem best kjör og þar með hag ríkissjóðs,“ segir Elva Björk. „Niðurstaðan er að skoða annað útboðsform en rammasamning. Það skýrir að í auglýsingu á rammasamningsútboði Ríkiskaupa sem var birt 28. febrúar voru farmiðakaup ekki á lista.“ Hún segir jafnframt að Ríkiskaup vinni um þessar mundir að undirbúningi almenns útboðs á tilteknum flugleiðum. Í Fréttablaðinu á laugardaginn var haft eftir Ólafi Stephensen, framkvæmdastjóra Félags atvinnurekenda, að ríkið hefði dregið lappirnar í þessu máli í rúm tvö ár. Félagið hafi áður gagnrýnt að þrátt fyrir lagaskyldu hafi ríkið ekki boðið út flugfarmiða. Í tilkynningu frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu í síðustu viku kom fram að útboð á farmiðum fór síðast fram árið 2011. „Stofnunin lauk umfjöllun sinni um málið um mitt ár 2014, með þeirri niðurstöðu að engin ríkisaðstoð fælist í kaupum á ferðum á vegum ríkisins hjá Icelandair,“ segir Elva Björk. „Þar sem kvörtun Iceland Express til ESA laut meðal annars að útboðsferlinu þótti ekki rétt að hefja útboðsferli að nýju meðan málið var til meðferðar þar.“ Hvorki Icelandair né WOW air vilja tjá sig mikið um þessi útboðsmál að svo stöddu. „Við höfum ekkert komið að þessu á neinn hátt,“ segir Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Icelandair. „Við bíðum bara eftir því að sjá skilmála útboðsins og skoðum þá málið.“ WOW air fagnar því hins vegar að nýtt útboð sé væntanlegt; „Við fögnum þessari niðurstöðu og treystum því að allir fái að sitja við sama borð,“ segir Svanhvít Friðriksdóttir, upplýsingafulltrúi WOW air.
Mest lesið „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Innlent Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Erlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Innlent Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Erlent Fleiri fréttir Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Sjá meira