Staðgreiddi Benz og viku síðar var honum stolið sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 16. mars 2015 16:29 "Ég staðgreiddi bílinn fyrir rúmri viku síðan. Það tók mig langan tíma að safna mér fyrir honum en verðmæti hans er um 2,2 milljónir. “
Snæfríður Sól Snorradóttir, 26 ára Reykjavíkurmær, varð fyrir þeirri leiðinlegu lífsreynslu að Benz bifreið hennar var stolið fyrir utan veitingastað í Hafnarstræti í gærkvöldi. Bíllinn er ófundinn en Snæfríður hefur tilkynnt um stuldinn til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu „Ég staðgreiddi bílinn fyrir rúmri viku síðan. Það tók mig langan tíma að safna mér fyrir honum en verðmæti hans er um 2,2 milljónir. Það er það sem gerir þetta sérstaklega leiðinlegt,“ segir Snæfríður Sól í samtali við Vísi. Um er að ræða silfraðan Mercedez Benz frá árinu 2005 en númerið á honum er VM-181. Snæfríður deildi mynd af bílnum og sagði frá atvikinu leiðinlega á Facebook í þeirri von um að einhver hefði orðið var við bílinn.Bíllyklarnir teknir úr töskunni Snæfríður hélt í miðbæ Reykjavíkur í gær til að fá sér að borða á Dirty Burger and Ribs við Austurstræti. Hún lagði bílnum við Hafnarstræti og rölti þaðan yfir á veitingastaðinn. Hún lagði töskuna sína frá sér á bekknum þar sem hún sat á meðan hún snæddi matinn. Eftir að hafa nært sig gekk hún áleiðis í Hafnarstræti en greip í tómt. „Lyklarnir voru ofarlega á töskunni og margt um manninn þarna inni, þannig að lyklunum hefur verið kippt af töskunni. Bíllinn var svo horfinn þegar ég kom til baka,“ segir hún. Snæfríður biðlar til allra sem telja sig hafa vitneskju um bílinn að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000.Innlegg frá Snæfríður Sól Snorradóttir.
Mest lesið „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Innlent Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Erlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Innlent Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Erlent Fleiri fréttir Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Sjá meira