Hæstiréttur staðfestir fjársvikadóm vegna tveggja kertastjaka Birgir Olgeirsson skrifar 15. október 2015 16:47 Konan blekkti afgreiðslumanninn með því að líma aðra verðmiða á kertastjakana. Vísir/Getty
Hæstiréttur staðfesti í dag dóm yfir konu sem var sakfelld fyrir fjársvik í Héraðsdómi Reykjaness. Konan var ákærð fyrir fjársvik og þjófnað með því að hafa stolið tveimur sápum að verðmæti 1.996 króna og blekkt afgreiðslumann með því að greiða 954 krónur fyrir tvo kertastjaka sem kostuðu í raun 4.395 krónur. Hafði konan límt 954 króna verðmiða á kertastjakana til að villa um fyrir afgreiðslumanninum. Átti þetta sér stað í nóvember árið 2013. Líkt og kom fram áður staðfesti Hæstiréttur dóminn yfir konunni er varðar fjársvik en sýknaði hana af ákæru um þjófnað á sápustykkjunum tveimur. Ástæðan er sú að dómurinn fyrir þjófnaðinn hefði aðeins verið studdur með frásögn eins vitnis gegn staðfastri neitun konunnar. Í dómi Hæstaréttar kemur fram að lögreglan hefði ekki gengið úr skugga um hvort konan hefði keypt sápurnar í annarri verslun eins og hún hefði haldið fram. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að konan hafði áður verið dæmd til greiðslu sektar fyrir þjófnað og hafði það brot ítrekunaráhrif samkvæmt almennum hegningarlögum. Var hún því dæmd til þrjátíu daga fangelsisvistar en fullnustu refsingarinnar skal frestað um tvö ár haldi hún skilorði.
Mest lesið Önnur sprunga opnast Innlent Fundu tennur í aftursætinu á bílaþvottastöð Innlent Að ráðast, eða ráðast ekki, á Moskvu Erlent Gengu að gosinu og óku til Grindavíkur án þess að vera stöðvaðar Innlent Leggur til að frídögum verði fækkað um tvo Erlent Handtekin fyrir að stunda kynlíf með munkum og kúga af þeim fé Erlent Dómstóll ESB staðfestir niðurstöðu varðandi vörumerkið Iceland Innlent Fallegt og ekkert smágos Innlent Hyggst ekki segja af sér þrátt fyrir reiði vegna Epstein-listans Erlent Fyrst vöruskemman, nú göngustígar: „Mórallinn er bara ömurlegur“ Innlent Fleiri fréttir Strandveiðar bannaðar á morgun Gos í beinni, ósáttir Grindvíkingar og íbúum drekkt í steypu Alvarleg árás með hamri í Reykjavík Sýknaður af ákæru um að nauðga konu í afmælisveislu hennar Varað við fölsuðum töflum sem innihalda hættulega efnablöndu Gengu að gosinu og óku til Grindavíkur án þess að vera stöðvaðar Fundu tennur í aftursætinu á bílaþvottastöð Landa í Grindavíkurhöfn og botna ekkert í lokunum Mikið eldingaveður á Vestfjörðum Eldgosið í heimsmiðlunum: „Ísland: Rýmt“ Enn eitt gosið hafið og íbúar tala um Groundhog Day Kæmi mér ekki á óvart að þetta væri síðasta Sundhnúkagosið Fyrst vöruskemman, nú göngustígar: „Mórallinn er bara ömurlegur“ Skoða hvort gosið breyti heimsókn von der Leyen Dómstóll ESB staðfestir niðurstöðu varðandi vörumerkið Iceland Fallegt og ekkert smágos Önnur sprunga opnast Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Göngumaður slapp ómeiddur úr sjálfheldu við Hestskarð Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni „Ekki bara fávísir hitabeltisbúar sem eru að detta á hausinn“ Yfirleitt Íslendingar sem aki utan vega Skipstjóri handtekinn talinn vera undir áhrifum „Ég var örugglega getinn í Land Rover“ „Valda fleiri húðkrabbameinum en sígarettur lungnakrabbameini“ Göngumaður í sjálfheldu við Hestskarð Ákall um ljósabekkjabann og gengið fyrir Ólöfu Töru Enn rís land í Svartsengi Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Hleypti líklega óvart úr Sjá meira