Innlent

Gerir heimildarmynd um íslenska tónlist

Snærós Sindradóttir skrifar
Leandro hefur lengi unnið á sjónvarpsstöðinni Fox í Argentínu. Hann dreymir um að koma heimildarmyndinni sinni um íslenska tónlist á kvikmyndahátíðir um allan heim.
Leandro hefur lengi unnið á sjónvarpsstöðinni Fox í Argentínu. Hann dreymir um að koma heimildarmyndinni sinni um íslenska tónlist á kvikmyndahátíðir um allan heim. vísir/ernir
„Ég hef ekki þessa tengingu við Björk. Ég veit að hún er mjög hæfileikarík, en ég fæ ekki gæsahúð,“ segir Leandro Cerro, 27 ára gamall Argentínumaður, sem er staddur hér á landi til að gera heimildarmynd um íslenska tónlist.

Leandro kom fyrst til Íslands fyrir ári og tók upp efni fyrir heimildarmyndina í fjóra mánuði. Nú er hann kominn aftur til að klára myndina. „Ég fann að ef ég kæmi og tæki bara upp það sem mér dytti í hug þá væri það mjög yfirborðskennt. Nú hef ég skýrari sýn. Það er gott að koma aftur og hafa annað sjónarhorn,“ segir Leandro.

Hann segir að þrjú lög Sigur Rósar í spennumyndinni Vanilla Sky, sem skartaði Tom Cruise og Penelope Cruz, hafi kveikt áhugann á íslenskri tónlist. Í kjölfarið hafi hann farið að hlusta meira á íslenska tónlist og orðið heillaður. „Ég varð að koma og reyna að skilja af hverju ég finn til svona sterkrar tengingar við tónlistina ykkar.“

Leandro hefur í sumar farið á milli tónlistarhátíða. „Ég byrjaði á Kammerhátíð á Kirkjubæjarklaustri og fékk áfall yfir því hvað hátíðin var lítil. Það voru stundum fleiri á sviðinu en áhorfendur. Mér þótti hátíðin samt mjög fín og umhverfið fallegt.“

Næst fór hann á Þjóðlagahátíð á Siglufirði.

„Svo fór ég á Eistnaflug í Neskaupstað. Ég var með mjög fyrirfram ákveðnar hugmyndir um þungarokkara og sá þá fyrir mér sem stóra og frekar ógnvekjandi menn,“ segir Leandro. Hátíðin átti þó eftir að koma honum á óvart fyrir að vera friðsæl. „Fyrsta daginn var ég að drekka bjór og borða í tjaldi við hliðina á tónleikastaðnum. Þá kemur risastór náungi að mér sem ég var skíthræddur við. Hann sagði djúpri röddu: „Þetta er það rómantískasta sem ég hef séð. Þú einn, að borða með kerti fyrir framan þig. Þetta er svo fokking rómantískt.“ Og svo labbaði hann bara í burtu.“

Seinna tók Leandro viðtal við manninn um áhuga hans á Skálmöld. „Metalhausar hafa þetta ógnvekjandi yfirbragð en svo eru þeir mjög hlýir og með stórt hjarta,“ segir hann. Áður en Leandro kom hingað fyrst ákvað hann að taka íslenskukúrs hjá Fjólu Dögg Hjaltadóttur í höfuðborg Argentínu, Buenos Aires. „Ég bjóst við því að vera einn. En svo voru 24 samlandar mínir mættir til að læra íslensku, og þeir voru allir þarna út af íslenskri tónlist. Hver einn og einasti.“

Hann segir íslensku erfiða í fyrstu. „En svo þegar þú ert kominn yfir erfiðasta hjallann er hún mjög blátt áfram. Svolítið eins og fólkið hér.“ 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×