Innlent

OR veitir 14 milljónum til rannsókna á lífríki Þingvallavatns

Atli Ísleifsson skrifar
Í tilkynningu frá OR segir að félagið verji öllum tekjum sínum af sölu veiðileyfa í Þingvallavatni frá 2015 til 2017 til rannsókna.
Í tilkynningu frá OR segir að félagið verji öllum tekjum sínum af sölu veiðileyfa í Þingvallavatni frá 2015 til 2017 til rannsókna. Vísir/Pjetur
Orkuveita Reykjavíkur hefur ákveðið að veita fjórtán milljónum króna til rannsókna á lífríki Þingvallavatns.

Í tilkynningu frá OR segir að félagið verji öllum tekjum sínum af sölu veiðileyfa í Þingvallavatni frá 2015 til 2017 til rannsókna.

Á ársfundi Orkuveitunnar á mánudaginn var tilkynnt hvaða þrjú verkefni yrðu styrkt af þessu tilefni:

  1. Jóhannes Sturlaugsson líffræðingur, fyrir hönd Laxfiska ehf., fær 8,1 milljónir króna til rannsókna á lífsháttum urriða sem nýta sunnanvert Þingvallavatn.
  2. Veiðimálastofnun fær 4,1 milljón króna til rannsókna á urriðastofni Ölfusvatnsár.
  3. Gunnar Steinn Jónsson líffræðingur fær 1,8 milljónir króna til rannsókna á svifþörungum í Þingvallavatni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×