Rúmlega milljarði varið til styttingar á biðlistum Jóhann Óli Eiðsson skrifar 1. september 2015 14:26 Kristján Þór Júlíusson er heilbrigðisráðherra. vísir/pjetur
Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra kynnti á fundi ríkisstjórnar í dag áætlun um átak til að stytta biðlista eftir tilteknum skurðaðgerðum. Ríkisstjórnin hefur falið heilbrigðisráðherra í samvinnu við fjármálaráðherra að gera tillögur um fjármögnun slíks verkefnis. Áætlaður kostnaður er um 1.260 milljónir króna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu. Biðlistar eftir aðgerðum lengdust umtalsvert meðan á verkföllum heilbrigðisstarfsfólks stóð síðastliðinn vetur. Embætti landlæknis upplýsti heilbrigðisráðherra nýverið um biðtíma og fjölgun á biðlistum eftir tilteknum aðgerðum í kjölfar verkfallanna og gerði tillögu um sértækar aðgerðir til að takast á við brýnasta vandann. Erindi heilbrigðisráðherra sem hann kynnti á fundi ríkisstjórnarinnar í dag byggist á tillögum Embættis landlæknis þar sem horft er bæði til biðtíma og sérstakrar áhættu sem leiðir af bið eftir aðgerð. Tillögurnar miða að því að stytta bið eftir augasteinsaðgerðum, gerviliðaaðgerðum á hné, gerviliðaaðgerðum á mjöðm og loks hjarta- og/eða kransæðamyndatöku. Ef litið er til fjölda þeirra sem beðið höfðu lengur en þrjá mánuði samkvæmt biðlistum í júní síðastliðnum voru það 2.915 sem biðu eftir skurðaðgerð á augasteini, 598 biðu eftir gerviliðaaðgerð á hné, 338 eftir gerviliðaaðgerð á mjöðm og 102 biðu eftir hjarta- og/eða kransæðamyndatöku og eru þar kransæðavíkkanir meðtaldar. Þetta er fjölgun miðað við sama tíma árið 2014 og biðtíminn getur verið allt að þrjú ár. Kostnaður við styttingu biðlista með fjölgun framangreindra aðgerða er áætlaður 1.165 milljónir króna en við þessa tölu bætist kostnaður vegna endurhæfingar og sjúkraþjálfunar auk heimahjúkrunar að fjárhæð 95 milljónir króna.
Mest lesið Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Skuggahliðar aukinnar sveppatínslu Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Skil næstu lægðar nálgast Innlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Fleiri fréttir Skuggahliðar aukinnar sveppatínslu „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Sjá meira