Andrés Jónsson sá stolið hjól sitt auglýst á Bland Jakob Bjarnar skrifar 5. júní 2015 11:47 Andrés almannatengill sá, sér til nokkurrar furðu, hjólið sitt auglýst á sölutorgi Bland.is.
Andrés Jónsson almannatengill rak upp stór augu þegar hann sá hjól, sama hjól og hafði verið stolið frá honum, auglýst á Bland-vefnum þar sem höndlað er með ýmsan varning. Þetta var fyrir rétt rúmri viku og skrifaði Andrés í kjölfarið athyglisverð skilaboð til vina sinna á hinum galopna og opinbera vettvangi Twitter: „ég var að senda þjófnum sem stal fína hjólinu mínu skilaboð á Bland. Sá veit ekki að ég er á leiðinni að sækja það en ekki kaupa það.“ Síðan setur Andrés myllumerki og „frh“ – sem gefur lesendum hans tilefni til að ætla að málinu sé ekki lokið. Samkvæmt heimildum Vísis stóð til að Andrés og þjófurinn myndu hittast á laugardaginn síðasta.Andrés hafði fullan hug á að hitta þjófinn, og ræða við hann hrútshornum tveimur, en vill nú ekki segja til um lyktir máls.Þetta vakti að vonum verulega athygli á Twitter og Vísir hafði samband við Andrés sem ekki vildi tjá sig um málið þá, þó hann hafi greint undan og ofan af því á opinberum vettvangi, því hann vildi ekki styggja þjófinn. Þó hann hafi hætt á að viðkomandi þjófur/sölumaður hafi ekki aðgang að Twitter. Andrés taldi ekki rétt að fjölmiðlar fjölluðu um málið; í sjálfu sér ekki hægt annað en taka tillit til þess – ekki vert að skaða þjófaveiðarnar með ótímabærum fréttaflutningi. Vinir Andrésar á Twitter leggja til ráðleggingar og áskoranir, um að höfð verði til taks falin myndavél. Fjörlegar umræður spunnust og Andrés lofar því að atburðir verði með þeim hætti að þeir verði í frásögur færandi. Vísir bauðst til þess að leggja til ljósmyndara sem væri með í för en Andrés taldi það af og frá. Síðan hefur ekkert spurst. Hvað gerðist?Þeirri spurningu verður ekki svarað í bráð því þegar loks náðist í Andrés nú fyrir stundu vegna málsins, til að fá frekari botn í það og lyktir: Hvort samkomulag, sættir, hafi tekist með Andrési og ránsmanninum, afþakkaði hann að tjá sig frekar.
Mest lesið Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Skuggahliðar aukinnar sveppatínslu Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Skil næstu lægðar nálgast Innlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Fleiri fréttir Skuggahliðar aukinnar sveppatínslu „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Sjá meira