Tólf mánaða nálgunarbann: Ákærður fyrir að hafa kveikt í á heimili barnsmóður og birt af henni nektarmyndir Bjarki Ármannsson skrifar 5. júní 2015 18:28 Hæstiréttur staðfesti í dag úrskurð Héraðsdóms Vesturlands frá því í síðasta mánuði. Vísir/GVA
Hæstiréttur staðfesti í dag úrskurð Héraðsdóms Vesturlands frá því í síðasta mánuði um að karlmanni verði gert að sæta tólf mánaða nálgunarbanni gagnvart barnsmóður sinni. Þetta er í þriðja sinn sem manninum er gert að sæta nálgunarbanni gagnvart konunni en síðasta nálgunarbann, sem var einnig til tólf mánaða, rann út í janúar síðastliðnum. Í dómi héraðsdóms kemur fram að lögreglustjórinn á Vesturlandi telji ljóst að eftir að síðasta nálgunarbann rann út hafi ónæði konunnar vegna ófriðar mannsins versnað til muna. Meðal annars hafi komið fram ummæli sem ekki væri hægt að taka öðruvísi en sem hótunum. Maðurinn og konan bjuggu saman ásamt syni sínum á Selfossi fram á haustið 2012. Í kjölfar sambúðarslita þeirra réðst maðurinn að barnmóður sinni, veitti henni áverka og var honum í kjölfarið gert að sæta nálgunarbanni í tvo mánuði. Hann braut gegn því banni. Sakamál gegn manninum er nú til meðferðar við Héraðsdóm Suðurlands en hann er meðal annars ákærður fyrir að hafa kveikt í á heimili konunnar og birt nektarmyndir af henni. Konan segir að eftir að sú ákæra hafi verið gefin út hafi maðurinn linnulítið áreitt hana með SMS-skeytum, skilaboðum á Facebook og munnlegum hótunum. Maðurinn þarf að halda sig í fimmtíu metra radíus frá heimili konunnar og má ekki nálgast hana á almannafæri eða vinnustað, hringja í hana, senda henni SMS-skeyti eða tölvupóst, rita á samskiptasíður hennar á internetinu eða setja sig á annan hátt í samband við hana til og með 15. maí 2016.
Mest lesið „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Erlent Fleiri fréttir Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Sjá meira