Afleitt veður í Mývatnssveit: Hættir ekki að veiða fyrr en hann fær kalsár á fingur og tær sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 3. júní 2015 12:08 "Það er afar sérkennileg tilfinning að byrja veiðimorguninn á því að fara ekki í vöðlurnar heldur finna sköfuna og skafa af bílrúðum “ vísir/anton brink
Hvít jörð blasti við Steingrími Sævarri Ólafssyni, veiðimanni og fjölmiðlaráðgjafa, þegar hann vaknaði í morgun. Hann er staddur í Mývatnssveit en þar er afleitt veður og snjókoma, nú í blábyrjun sumars. Steingrímur segist ekki ætla að láta veðrið stöðva sig, en er því feginn að hafa tekið með sér föðurland og skíðajakka. „Við komum í gær í -1,5 gráðum og aflinn var að koma svona snöggfrystur upp úr ánni. Maður er yfirleitt ekki vanur því svona í sumarbyrjun að klæðast tvöföldu föðurlandi og þremur til fjórum bolum," segir hann. „Þetta er óvenju slæmt. Ég stend hérna núna og það gengur á með hríðum og skyggnið er lítið sem ekkert. Þegar maður lítur hér upp í hlíðarnar í kring þá er allt alhvítt og það er afar sérkennileg tilfinning að byrja veiðimorguninn á því að fara ekki í vöðlurnar heldur finna sköfuna og skafa af bílrúðum og keyra miðstöðina í gang og velta því fyrir sér hvort maður hafi tekið vetrardekkin of snemma undan," bætir Steingrímur við. Hann segir þó fátt geta stöðvað sig í veiðinni, allra síst veðrið. „Maður veiðir alveg þangað til maður fær kalskemmdir á fingur og tær. Þetta er svo mikil paradís, í hvernig veðri sem er. Þetta er svona veiðistaður þar sem það er sama hvort það er glampandi sól og fimmtán stiga hiti eða eins stigs frost, eins og núna. Maður reglulega leggur frá sér stöngina og horfir í kringum sig, andvarpar og segir Guð minn almáttugur hvað þetta er fallegt. Það á líka við um þegar sumarið er í vetrarbúningi," segir hann glaður í bragði. Hann bætir við að veiðin hafi gengið afar vel.
Mest lesið „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Erlent Fleiri fréttir Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Sjá meira