Byggja 450 búseturéttaríbúðir í borginni Stefán Árni Pálsson skrifar 23. janúar 2015 16:14 Gísli Örn Bjarnhéðinsson framkvæmdastjóri Búseta og Dagur B. Eggertsson. mynd/reykjavíkurborg
Í dag skrifuðu Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Gísli Örn Bjarnhéðinsson framkvæmdastjóri Búseta undir viljayfirlýsingu þess efnis að Búseti fái byggingarrétt fyrir 226 íbúðir á nokkrum stöðum í borginni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg. Þetta er til viðbótar við þær 225 íbúðir sem Búseti er með í undirbúningi eða smíðum. Alls er því gert ráð fyrir að um 450 búseturéttaríbúðir verði byggðar í Reykjavík af Búseta á næstu 3 – 5 árum. Undirskriftin fór fram við Árskóga í Suður-Mjódd, en þar er gert ráð fyrir að Búseti byggi 50 íbúðir. Auk þeirra er í viljayfirlýsingunni með fyrirvörum um endanlegt deiliskipulag gert ráð fyrir 60 íbúðum að Keilugranda 1, 20 íbúðum við Skógarveg 16 og síðan allt að 100 íbúðum á smærri þéttingarreitum. Blöndun innan hverfa og aukið framboð smærri íbúða Dagur B. Eggertsson borgarstjóri segir að gert sé ráð fyrir að húsnæði verði hannað í samræmi við markmið húsnæðisstefnu um fjölbreyttar húsagerðir, blöndun íbúðagerða innan hverfa og aukið framboð smærri íbúða, fyrir alla félagshópa. Með úthlutun lóðanna er stuðlað að fjölbreyttara húsnæðisframboði breiðs hóps í samfélaginu og reynt að skapa húsnæðisgrundvöll fyrir fjölda einstaklinga sem annars gætu þurft á aðstoð að halda. Þannig er byggð brú milli leigu- og eignaríbúða. Reykjavíkurborg stuðli þannig að blöndun eignaforma í samvinnu við félag sem rekið er án hagnaðarsjónarmiða. Vilji er til að stuðla að öryggi í húsnæðismálum og mæta þörfum í samfélaginu fyrir fjölbreytt húsnæðisform.Úthlutun skilyrt á búseturétt Reykjavíkurborg áskilur sér rétt til að setja sérstaka úthlutunarskilmála um framangreindar lóðir og verð byggingarréttar fer eftir nánara samkomulagi. Gatnagerðargjöld verða innheimt í samræmi við gildandi gjaldskrá Reykjavíkurborgar hverju sinni. Hugmyndavinna við Keilugranda 1 er að byrjamynd/reykjavíkurborgÍ leigusamningum um lóðirnar skal vera kvöð þess efnis að á lóðunum skuli byggðar og reknar búseturéttar- eða leiguíbúðir og að eignarhald þeirra skuli ávallt vera óbreytt, nema að fengnu samþykki Reykjavíkurborgar. Jafnframt að ef borgarráð samþykkir framsal byggingarréttar þá áskilur Reykjavíkurborg sér rétt til greiðslu fyrir byggingarrétt á viðkomandi lóð eða lóðum, eftir atvikum viðbótargjalds, með hliðsjón af markaðsverði sambærilegs byggingarréttar á hverjum tíma. Búseti lýsir yfir vilja til að taka þátt í samstarfi um uppbyggingu Nýrra Reykjavíkurhúsa við Vesturbugt og á öðrum reitum, samkvæmt nánara samkomulagi, hvort sem er við Reykjavíkurborg eða í gegnum opinbera einkaframkvæmd um uppbygginguna.Búseti er öllum opinn „Búseti er öllum opinn og er kostur fyrir breiðan hóp fólks í samfélaginu,“ segir Gísli. „Búseturétturinn er mikilvægur valkostur á íslenskum húsnæðismarkaði og vel þekkt form í nágrannalöndum okkar. Stundum er sagt að búseturétturinn sé þriðja leiðin, mitt á milli leiguforms og eignaforms enda sameinar hún helstu kosti beggja. Endurteknar þjónustu- og ánægjumælingar segja sína sögu en um 93% íbúa hjá Búseta segjast mæla með þessu fyrirkomulagi við vini og vandamenn“.
Mest lesið Andrew handtekinn á heimili sínu Erlent „Hann reyndi að lokka þær inn í bílinn“ Innlent Forstjóri Deloitte sýknaður af ákæru fyrir kynferðisbrot Innlent „Við systkinin erum bara vinnandi fólk“ Innlent Karl III: Réttlætið verður að hafa sinn gang Erlent „Ekki af hinu góða og líklegra til að valda skaða“ Innlent Tengiltvinnbílar þrefalt eyðslufrekari en framleiðendur segja Erlent Viðbúnaðurinn ekki verið eins mikill frá innrásinni í Írak Erlent „Grunlaus“ Wexner segist hafa verið gabbaður af Epstein Erlent Miðflokkurinn skarar fram úr í kjördæmi formannsins Innlent Fleiri fréttir Árekstur á Sprengisandi Vistmenn á Hjalteyri krefjast bóta sem þeim var lofað Það sem farþegarnir sjá ekki í innanlandsfluginu Guðmundur Ingi ekki á lista Samfylkingar „Ekki af hinu góða og líklegra til að valda skaða“ Forstjóri Deloitte sýknaður af ákæru fyrir kynferðisbrot Ánægjulegt að þriðji hagfræðingurinn sé fundinn „Hann reyndi að lokka þær inn í bílinn“ Fallni prinsinn handtekinn og undirboð á fasteignamarkaði aukast Heitavatnslög gaf sig í Varmahlíðarskóla Miðflokkurinn skarar fram úr í kjördæmi formannsins „Fjölskyldur eru margar í algjörri spennitreyju“ Fleiri telja Bandaríkin andstæðing en bandamann Bein útsending: Heimilisleysi á Íslandi Ráðist á ungan dreng með piparúða „Alltaf hætta á stigmögnun með þá utanríkisstefnu sem Rússland rekur“ Gestafjöldi verður ekki takmarkaður við fimm þúsund Þurfi að útkljá hver er að misskilja hvern Gaut ellefu íslenskum fjárhundum sem er heimsmet „Við systkinin erum bara vinnandi fólk“ Litir víkja fyrir nútímanum víðast hvar Málið verði flutt upp á nýtt með nýju vitni Með Alzheimer en gæti beðið í fjögur ár Braut á ungri bróðurdóttur sinni sem bjó á heimilinu Nauðgari hélt því fram að Snapchat-skilaboð væru ekki frá honum Jón Gunnarsson biðst afsökunar á orðum sínum Borgin taki til sín fimmtung launahækkunar barnafólks Almannatryggingamálinu frestað en engar breytingar í farvatninu Ótrúlegt hve fáar virkjanir komist í gegnum rammaáætlun Tekur tímabundið við Framsóknarflokknum Sjá meira