Færri Íslendingar ætla að ferðast innanlands í sumarfríinu Atli Ísleifsson skrifar 6. ágúst 2015 13:26 Fleiri sögðust ekki ætla að ferðast neitt í sumarfríinu en í fyrra. Vísir/Pjetur
73,8 prósent Íslendinga segjast ætla að ferðast innanlands í sumarfríinu og þar af sögðust 42,4 prósent aðeins ætla að ferðast innanlands í sumarfríinu. Þetta kemur fram í nýrri könnun MMR þar sem kannað var hvort Íslendingar ætluðu að ferðast innanlands eða utan í sumarfríinu. Til samanburðar sögðust 83,1 prósent ætla að ferðast innanlands árið 2014 og 52,1 prósent sögðust eingöngu ætla að ferðast innanlands sama ár. „Fleiri sögðust ætla að ferða utanlands í sumarfríinu í ár en í fyrra. Af þeim sem tóku afstöðu sögðust 41,6% ætla að ferðast utanlands í sumarfríinu og 10,3% sögðust eingöngu ætla að ferðast utanlands. Til samanburðar sögðust 38,2% ætla að ferðast utanlands árið 2013 og 7,2% sagðist eingöngu ætla að ferðast utanlands sama ár. Fleiri sögðust ekki ætla að ferðast neitt í sumarfríinu en í fyrra. Af þeim sem tóku afstöðu sögðust 16,0% ekki ætla að ferðast neitt í sumarfríinu, borið saman við 9,7% í fyrra.Munur á ferðahögum Íslendinga eftir búsetu, heimilistekjum og stjórnmálaskoðunumÞeir sem að búsettir voru á höfuðborgarsvæðinu voru líklegri til að segjast ætla að ferðast erlendis í sumarfríinu en þeir sem búsettir voru á landsbyggðinni. Þannig sögðust 44,8% þeirra sem búsett voru á höfuðborgarsvæðinu að þau ætluðu að ferðast erlendis í sumarfríinu, borið saman við 36,7% þeirra sem búsett voru á landsbyggðinni. Þeir sem höfðu 600 þúsund eða meira í heimilistekjur voru líklegri til að segjast ætla að ferðast í sumarfríinu en þeir sem höfðu heimilistekjur undir 600 þúsund. Þannig sögðust um 90% þeirra sem höfðu meira en 600 þúsund á mánuði í heimilistekjur ætla að ferðast í sumarfríinu, borið saman við um 80% þeirra sem höfðu heimilistekjur á bilinu 250-599 þúsund á mánuðir og 67% þeirra sem höfðu heimilistekjur undir 250 þúsund á mánuði. Einnig reyndist nokkur munur á ferðahögum eftir stjórnmálaskoðunum. Þeir sem að sögðust styðja Samfylkinguna og Pírata voru líklegastir til að segjast ætla ferðast innanlands í sumar en stuðningsfólk Bjartrar framtíðar var líklegast til að segjast ætla að ferðast erlendis í sumarfríinu. Af þeim sem tóku afstöðu og studdu Samfylkinguna sögðust 82,0% ætla að ferðast innanlands í sumarfríinu og 78,3% þeirra sem studdu Pírata. Af þeim sem tóku afstöðu og studdu Bjarta framtíð sögðust 55,0% ætla að ferðast erlendis í sumarfríinu.“Nánar má lesa um könnunina á vef MMR.
Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Innlent Fleiri fréttir Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Sjá meira