Innlent

Þykir afar sérstakt að fyrsta glasameðferð sé ekki niðurgreidd

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Ófrjósemi getur haft gríðarleg áhrif á líf fólks.
Ófrjósemi getur haft gríðarleg áhrif á líf fólks. Vísir/Getty
Tilvera, samtök um ófrjósemi, skora á stjórnvöld að breyta því fyrirkomulagi að fyrsta glasa- eða smásjármeðferð verði niðurgreidd að nýju líkt og er tilfellið á Norðurlöndunum. Á Íslandi er staðan sú að önnur, þriðja og fjórða meðferð eru niðurgreiddar að hluta en ekki sú fyrsta.

Þetta kemur fram í tilkynningu.

Nýlega fór fram ráðstefna NFS eða Nordic Fertility Society í Hörpu.

 

Hér á eftir fer tilkynning Tilveru í heild sinni:

„Á ráðstefnu Nordic Fertility Society (NFS) sem lauk í Hörpunni miðvikudaginn 5. ágúst afhenti stjórn Tilveru læknum ART Medica box sem ætluð eru þeim sem eru að hefja fyrstu tæknifrjóvgunarmeðferð sína á frjósemismiðstöðinni. Í boxunum má meðal annars finna gagnlegar upplýsingar um hvers má vænta, upplýsinga um félagið og þann stuðning sem það veitir auk Exacto þungunarprófs. Finnst stjórninni mikilvægt að styðja þannig við bakið á þeim sem taka þessi fyrstu spor; spor vonar og eftirvæntingar, en oft á tíðum ótta og óöryggis. Fólk veit e.t.v. ekki hvert það eigi að snúa sér þarfnist það stuðnings en þar koma samtökin Tilvera sterkt inn.

Undanfarin ár hefur Tilvera barist fyrir því að fyrsta glasa- eða smásjármeðferð verði niðurgreidd að nýju en á öllum hinum Norðurlöndunum eru þrjár meðferðir greiddar að fullu auk þess sem uppsetningu á frystum fósturvísum er innifalin heppnist fyrsta fósturfærsla ekki. Á Íslandi er staðan hins vegar sú að meðferðir 2-4 eru niðurgreiddar af sjúkratryggingum og að hluta eingöngu og hér er auk þess greitt fullt gjald fyrir hverja uppsetningu á frystum fósturvísum. Augljóst er að allir í sjúklingahópnum þurfa að fara í fyrstu meðferðina og þykir það afar sérstakt að málum sé háttað hér á landi eins og raun ber vitni.

Sjúklingum á landsbyggðinni, sem ekki eru í niðurgreiddri meðferð, ber að standa straum að ferðakostnaði, sem einnig getur verið hár en eingöngu þeir sem eru í niðurgreiddri meðferð fá niðurgreiðslu á ferðakostnaði. Hér finnst Tilveru halla verulega á skjólstæðinga sína sem búa úti á landi.

1 af hverjum 6 glímir við ófrjósemi og 3,2% barna sem fædd eru á Íslandi eru fædd eftir glasa- og smásjármeðferðir (ART) eða 136 börn.*

Við skorum hér með á stjórnvöld að hlusta á rödd okkar og breyta þessu fyrirkomulagi svo við getum staðið jafnfætis frændum okkar og frænkum á hinum Norðurlöndunum.

*m.v. 2012.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×