Þykir afar sérstakt að fyrsta glasameðferð sé ekki niðurgreidd Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 6. ágúst 2015 22:23 Ófrjósemi getur haft gríðarleg áhrif á líf fólks. Vísir/Getty
Tilvera, samtök um ófrjósemi, skora á stjórnvöld að breyta því fyrirkomulagi að fyrsta glasa- eða smásjármeðferð verði niðurgreidd að nýju líkt og er tilfellið á Norðurlöndunum. Á Íslandi er staðan sú að önnur, þriðja og fjórða meðferð eru niðurgreiddar að hluta en ekki sú fyrsta. Þetta kemur fram í tilkynningu. Nýlega fór fram ráðstefna NFS eða Nordic Fertility Society í Hörpu. Hér á eftir fer tilkynning Tilveru í heild sinni: „Á ráðstefnu Nordic Fertility Society (NFS) sem lauk í Hörpunni miðvikudaginn 5. ágúst afhenti stjórn Tilveru læknum ART Medica box sem ætluð eru þeim sem eru að hefja fyrstu tæknifrjóvgunarmeðferð sína á frjósemismiðstöðinni. Í boxunum má meðal annars finna gagnlegar upplýsingar um hvers má vænta, upplýsinga um félagið og þann stuðning sem það veitir auk Exacto þungunarprófs. Finnst stjórninni mikilvægt að styðja þannig við bakið á þeim sem taka þessi fyrstu spor; spor vonar og eftirvæntingar, en oft á tíðum ótta og óöryggis. Fólk veit e.t.v. ekki hvert það eigi að snúa sér þarfnist það stuðnings en þar koma samtökin Tilvera sterkt inn. Undanfarin ár hefur Tilvera barist fyrir því að fyrsta glasa- eða smásjármeðferð verði niðurgreidd að nýju en á öllum hinum Norðurlöndunum eru þrjár meðferðir greiddar að fullu auk þess sem uppsetningu á frystum fósturvísum er innifalin heppnist fyrsta fósturfærsla ekki. Á Íslandi er staðan hins vegar sú að meðferðir 2-4 eru niðurgreiddar af sjúkratryggingum og að hluta eingöngu og hér er auk þess greitt fullt gjald fyrir hverja uppsetningu á frystum fósturvísum. Augljóst er að allir í sjúklingahópnum þurfa að fara í fyrstu meðferðina og þykir það afar sérstakt að málum sé háttað hér á landi eins og raun ber vitni. Sjúklingum á landsbyggðinni, sem ekki eru í niðurgreiddri meðferð, ber að standa straum að ferðakostnaði, sem einnig getur verið hár en eingöngu þeir sem eru í niðurgreiddri meðferð fá niðurgreiðslu á ferðakostnaði. Hér finnst Tilveru halla verulega á skjólstæðinga sína sem búa úti á landi. 1 af hverjum 6 glímir við ófrjósemi og 3,2% barna sem fædd eru á Íslandi eru fædd eftir glasa- og smásjármeðferðir (ART) eða 136 börn.* Við skorum hér með á stjórnvöld að hlusta á rödd okkar og breyta þessu fyrirkomulagi svo við getum staðið jafnfætis frændum okkar og frænkum á hinum Norðurlöndunum. *m.v. 2012.“
Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Innlent Fleiri fréttir Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Sjá meira