Slökkvilið vanbúin sökum fjárskorts sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 21. júlí 2015 12:29
Fjöldi slökkviliða er vanbúinn vegna skorts á fjármagni og hafa sveitarfélög vanrækt skyldur sínar í gerð áætlana um brunavarnir, að mati forstjóra Mannvirkjastofnunar. Staðan í þessum málum sé grafalvarleg. Brunavarnaáætlanir sveitarfélaga gera grein fyrir mönnun, skipulagi, tækjabúnaði og þjálfun slökkviliðsins og þarf samþykki sveitarstjórnar. Áætlunin gerir sveitarstjórnarmönnum grein fyrir stöðu viðbragðsmála í sveitarfélaginu og með áætluninni eru íbúar og atvinnulíf einnig upplýst um þessi mál. Einungis rúmur helmingur sveitarfélaga hefur lokið við gerð brunavarnaráætlunar. Björn Karlsson, forstjóri Mannvirkjastofnunar, segir mikilvægt að gripið sé til ráðstafana. „Allt of mörg sveitarfélög vanrækja skyldu sína að gera áætlun um brunavarnir og svo framvegis og mikill fjöldi þeirra er vanbúinn vegna skorts á fjármagni. Nú er það þannig að það varð hér hrun og maður verður að sýna því ákveðinn skilning að fjárhagserfiðleikar sveitarfélaga um þessar mundir eru miklir. En það eru takmörk fyrir því hve langt er hægt að ganga í niðurskurði í fé til slökkviliða,” segir Björn. Hann segir stöðuna afar misjafna hjá slökkviliðum á landinu, sem eru fjörutíu talsins. „Við sáum það þegar við forum yfir landið og erum með okkar lögbundna eftirlit með starfsemi slökkviliða að þá er það þannig að fjárfesting í búnaði, þjálfun, yfirferð reykköfunartækja og annað slíkt hefur minnkað og það er mikilvægt að innviðum eins og slökkviliðinu sé sinnt vel.” Hann segir að um sé að ræða fjársvelti og að tímaspursmál sé hvenær það komi niður á rekstrinum. „Það gefur auga leið að þegar menn skera svona niður í innviðunum, þessum mikilvægu innviðum eins og slökkviliðin eru, þá mun það koma fram fyrr eða síðar í rekstrinum og í starfi þeirra. Við getum ekki bent á ákveðna atburði hvað það varða heldur kemur þetta bara í ljós þegar við skoðum stöðu slökkviliðana um landið, “ segir Björn Karlsson.
Mest lesið Gular viðvaranir og allt að tuttugu og sjö stig Veður „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Lindsey Graham er látinn Erlent Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Innlent Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Innlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Innlent Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Innlent Íran og Bandaríkin skiptast á árásum Erlent Var látin í sólarhring áður en hún fannst Erlent Fleiri fréttir Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Sjá meira