Vopnað rán í Samkaupum: Sami ræningi og um helgina? Bjarki Ármannsson skrifar 16. júlí 2015 17:23 Á myndinni lengst til vinstri sést maðurinn sem rændi sömu verslun um helgina.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar nú manns sem framdi rán í versluninni Samkaup í Hófgerði 30 í Kópavogi í dag, en tilkynning um málið barst lögreglu kl. 13.50. Ræninginn, sem sést á meðfylgjandi myndum, ógnaði starfsfólki með hnífi og hafði síðan á brott með sér einhverja fjármuni. Samkvæmt lögreglu er hann um 180 sentímetrar á hæð, ljóshærður, grannvaxinn og var klæddur í gráa hettupeysu, bláar gallabuxur og svarta Nike skó. Þá huldi hann andlit sitt með svörtum klút. Talið er að maðurinn sé í kringum tvítugt, eða rúmlega það. Þess má geta að rán var framið í sömu verslun síðastliðinn laugardag og er það óupplýst. Ein myndanna er úr því ráni, en á henni er ræninginn berhöfðaður. Grunur leikur á að um sama mann sé að ræða og rændi verslunina í dag. Þeir sem geta gefið upplýsingar um ræningjann eru beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444 1000, en upplýsingum má einnig koma á framfæri í tölvupósti á netfangið adalsteinna@lrh.is eða í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Tengdar fréttir Vopnað rán í verslun í Kópavogi Ræninginn ógnaði starfsmanni með hnífi. 16. júlí 2015 15:19 Mest lesið Ekki séð neitt þessu líkt á sínum fjörutíu ára ferli Innlent Er við góða líkamlega heilsu en heilinn að „bregðast honum“ Erlent Kynna drög að nýrri stefnu í heilbrigðismálum Innlent Málafjöldi tvöfaldast milli ára: „Hálfur milljarður farinn nú þegar“ Innlent Málverk stolið af nasistum fannst í argentínskri fasteignaauglýsingu Erlent Kallar bandarískan erindreka á teppið vegna Grænlandsmála Erlent Minntust þess ekki að hafa brennt tösku fyrir Stefán Blackburn Innlent 50 prósenta tollar á indverskar vörur taka gildi í Bandaríkjunum Erlent Lögfesta bann gegn símanotkun í skólum Erlent Sakar eftirlitsaðila um að framfylgja ekki leigubílalögum Innlent Fleiri fréttir Kynna drög að nýrri stefnu í heilbrigðismálum Ekki séð neitt þessu líkt á sínum fjörutíu ára ferli Innbrot og slagsmál í miðborginni Segir dóminn áfellisdóm yfir seinagangi lögreglu í kynferðisbrotamálum Málafjöldi tvöfaldast milli ára: „Hálfur milljarður farinn nú þegar“ Heilbrigðisráðuneytið færir sig um set Enginn vilji taka ábyrgð á því hvenær eigi að loka Reynisfjöru Minntust þess ekki að hafa brennt tösku fyrir Stefán Blackburn Sakar eftirlitsaðila um að framfylgja ekki leigubílalögum Játaði Hamraborgarmálið, grunaður í hraðbankamálinu og vitni í Gufunesmálinu Hraðbankinn fannst á Hólmsheiði „Starfsemi sem þarf auðvitað bara að stoppa" Ekkjan, fjársvikahrina og ferðamenn sem hunsa lokanir Lenti næstum framan á vörubíl við framúrakstur Nú má heita Snjókaldur en ekki Latína „Það er bara allt á floti hérna alls staðar“ Fjárhús varð öldugangi að bráð Sveinn nýr formaður stjórnar Landspítalans Heimsótti foreldra Matthíasar: Sagðist sjálfur hafa átt hugmynd að lögmannaskiptum Milljónirnar 22 voru enn í hraðbankanum þegar hann fannst Fresta byggingu annarrar heilsugæslu um fimm ár hið minnsta Afsökunarbeiðni Sigríðar Bjarkar skipti sköpum Hunsa rauða ljósið í Reynisfjöru: „Er að setja sig í mjög meðvitaða hættu“ Sagði til myndbönd af Matthíasi að berja menn í tálbeituaðgerðum „Stórsigur fyrir réttlæti“ Þýskur herforingi í heimsókn á Íslandi Mannekla hjá lögreglu engin afsökun fyrir fyrningu mála Skoða hvort hægt sé að beita Ísrael refsiaðgerðum Gufunesmálið, Mannréttindadómstóll Evrópu og Sjálfstæðisflokkur stærstur í borginni Móðir um sakborning: „Matthías er blíður og góður“ Sjá meira