Meirihlutinn gerir breytingar á makrílfrumvarpinu Heimir Már Pétursson skrifar 16. júní 2015 13:01 Jón Gunnarsson er formaður atvinnuveganefndar. vísir/vilhelm
Þingfundi hefur verið frestað í þrígang í dag. Upphaflega átti hann að hefjast klukkan 11, var þá frestað til klukkan hálftólf og svo frestað aftur til klukkan 12.30. Nú hefur honum svo verið frestað til klukkan hálftvö en formannafundur hófst klukkan 13. Samkvæmt heimildum fréttastofunnar risu deilur í atvinnuveganefnd í morgun vegna makrílfrumvarpsins. Samkvæmt því átti að kvótasetja makrílinn og úthluta honum til sex ára en nú leggur meirihlutinn til að honum verði úthlutað til þriggja ára, samkvæmt heimildum fréttastofunnar, og hann verði framseljanlegur. Lilja Rafnhey Magnúsdóttir fulltrúi Vinstri grænna í nefndinni segir þessa breytingu ekki verða til þess að samkomulag takist um afgreiðslu málsins og þar með þinglok.Minnihlutinn vill að makrílfrumvarpið verði dregið til baka „Já, það voru kynntar breytingar og þær voru svona eitthvað afturhvarf frá fyrstu hugmyndum en bara langt frá því samkomulagi sem reiknað var með að við værum að ná við stjórnarmeirihlutann. Svo við erum því miður víðs fjarri einhverri niðurstöðu varðandi makrílinn og afdrif þess frumvarps. Þetta var algjörlega óásættanlegt sem lagt var til á fundinum í morgun.“ Stjórnarandstaðan vill að frumvarpið verði dregið til baka og makríl úthlutað til eins ár eins og gert hefur verið undanfarin ár og skipulag á framtíð makrílveiða verði ákveðið samhliða heildarendurskoðun á lögum um stjórn fiskveiða í haust. En Sigurður Ingi Jóhannsson sjávarútvegsráðherra hætti við að leggja fram slíkt frumvarp í vor vegna ágreinings milli stjórnarflokkanna.Mörg mál bíða afgreiðslu á þingi „Helsta breytingin er sú að menn eru að taka stórt skref inn í núverandi kvótakerfi þó þeir hægji aðeins gönguna miðað við það sem núverandi frumvarp gerði ráð fyrir,“ segir Lija Rafney. Ekkert samkomulag er um þinglok en mörg mál bíða afgreiðslu og um sum þeirra er ekki fullkomin eining milli stjórnarflokkanna. „Þetta útspil var nú ekki til þess að maður fari að sjá fyrir endann á þessu en maður vonar að menn sýni þá skynsemi að draga þetta til baka og fari aftur á þann stað sem okkur fannst við vera komin á.“
Mest lesið „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi Innlent Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Erlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Segir upp eftir tvær vikur í starfi Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Fleiri fréttir Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Sjá meira