Skýringa enn leitað á dularfullum sauðfjárdauða Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 16. júní 2015 19:15
Ríflega eitt hundrað bændur um allt land hafa orðið varir við óvenjulegan sauðfjárdauða á bæjum sínum. Dýralæknir segir skýringa enn leitað en að kindurnar hafi fóðrast illa. Matvælastofnun hefur undanfarna viku unnið að því að kanna umfang og útbreiðslu sauðfjárdauða víða um land. Dýralæknar á Keldum og hjá Matvælastofnun hittust í dag til að meta stöðuna. 109 sauðfjárbændur hafa orðið varir við óvenjulegan sauðfjárdauða og hafa nú svarað spurningalista þessa efnis. „Þetta eru svör frá öllu landinu og þetta eru ær og hrútar,“segir Sigurborg Daðadóttir, yfirdýralæknir hjá Matvælastofnun. „Þetta er af báðum kynjum og það er á öllum aldri sem er óeðlilegur dauði í sauðfénu. Það virðist vera hærri dauðatíðni á Vesturlandi og Norðvesturlandi, allt upp í fjórtán prósent. Það er það hæsta sem við höfum séð í þessari spurningakönnun. Lægsta dauðatíðnin er á Austurlandi, það er undir fimm prósent þar.“ Sigurborg telur að svo geti vel verið að óvenjulegur sauðfjárdauði sé á fleiri bæjum. Enn er verið að leita skýringa dauðans. „Það er vitað að þetta fé nærist ekki,“ segir Sigurborg. „Bændur hafa aukið verulega fóðurbætisgjöfina. Þeir gefa miklu meira fóðurbæti í ár en undanfarin ár, en af einhverjum ástæðum nýtir dýrið ekki það fóður sem í hana fer. Þær halda lyst en nærast ekki og horast.“ Sigurborg segir það ómögulegt að segja á þessari stundu um hvers lags sjúkdóm sé að ræða en ekkert sé útilokað. „Það er augljóst að þetta er sjúkdómur, en af hvaða völdum vitum við ekki.“
Mest lesið Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Innlent Fleiri fréttir Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Sjá meira