Rúmlega fjörutíu prósent andvíg byggingu mosku Stefán Árni Pálsson skrifar 8. október 2014 14:12 Meirihluti var hlynntur því að Þjóðkirkjan fái að byggja trúarbyggingar á Íslandi.
Meirihluti landsmanna er hlynntur því að Þjóðkirkjan fái að byggja trúarbyggingar á Íslandi. MMR kannaði á dögunum afstöðu Íslendinga til þess að mismunandi trúfélög fái að byggja trúarbyggingar á Íslandi. Af þeim sem tóku afstöðu sögðust 64,4% vera fylgjandi því að Þjóðkirkjan fái að byggja trúarbyggingar en 9,5% voru því andvíg. Hins vegar voru skiptar skoðanir á því hvort að önnur trúfélög ættu að fá að byggja trúarbyggingar á Íslandi. Þannig sögðust 49,2% vera fylgjandi því að Ásatrúarfélagið fái að byggja, 36,5% voru fylgjandi því að Búddistafélagið fái að byggja, 31% voru fylgjandi því að Rússneska Rétttrúnaðarkirkjan fái leyfi og 29,7% voru fylgjandi því að Félag múslima á Íslandi fái að reisa sér hús á Íslandi. Mun færri sögðust andvígir því að Þjóðkirkjan fengi að byggja trúarbyggingar en Félag múslima á Íslandi. Af þeim sem tóku afstöðu sögðust 9,5% vera andvíg því að Þjóðkirkjan fái að byggja trúarbyggingar á Íslandi, borið saman við að 42,4% sögðust andvíg því að Félag múslima fengi það.mynd/mmrSpurt var: „Hversu fylgjandi eða andvíg(ur) ertu því að eftirfarandi trúfélög fái að byggja trúarbyggingar á Íslandi? -með trúarbyggingum er átt við byggingar svo sem moskur, hof, kirkjur og musteri.“Svarmöguleikar voru: Mjög andvíg(ur), Frekar andvíg(ur), Hvorki né, Frekar fylgjandi, Mjög fylgjandi og Veit ekki/vil ekki svara. Samtals tóku 92,4% afstöðu til spurningarinnar (þ.e. tóku afstöðu til amk. eins trúfélags) Þegar afstaða til þess að mismunandi trúfélög fái að byggja trúarbyggingar á Íslandi var skoðuð eftir stuðningi við stjórnmálaflokka komu ljós skiptar skoðanir á milli fylgjenda mismunandi stjórnmálaflokka. Þannig benda niðurstöðurnar til þess að þeir sem styðja Framsóknar og Sjálfstæðisflokkinn geri frekar greinarmun á Þjóðkirkjunni og öðrum trúfélögum en þeir sem styðja aðra flokka. Af þeim sem tóku afstöðu og studdu Framsóknarflokkinn sögðust 79,2% vera fylgjandi því að Þjóðkirkjan fái að byggja trúarbyggingar á Íslandi en 15,3% voru fylgjandi því að Félag múslima á Íslandi fái að byggja trúarbygginar á Íslandi. Meðal Sjálfstæðismanna sögðust 67,0% vera fylgjandi því að Þjóðkirkjan fái að reisa trúarbyggingar á Íslandi og 12,5% voru fylgjandi því Félag múslima á Íslandi fái að byggja trúarbyggingar. Til samanburðar sögðust 70,8% þeirra sem studdu Samfylkinguna vera fylgjandi því að Þjóðkirkjan fái að byggja trúarbyggingar á Íslandi og 52,6% voru fylgjandi því að Félag múslima á Íslandi fái að byggja trúarbyggingar.
Mest lesið Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Fleiri fréttir Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China setur beint flug í sölu Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Lögregla og björgunarsveitir leita að manneskju á Akureyri „Þarf að hafa afleiðingar ef fólki er lógað af heilbrigðisstofnun“ Mikilvægt að draga lærdóm af gerð gatnamótanna „Vald flugstjórans er náttúrulega alveg klárt“ Segir málið verða að hafa afleiðingar fyrir Skúla Tómas Vestmannaeyjabær áfrýjar til Landsréttar Segir Dag plata með úreltri skýrslu Leiðrétting fréttar: Það sem Þorgerður sagði í raun Íslenskt sumarveður verðmæt auðlind Vara við hættulegum aðstæðum við Sólheimajökul Sjá meira