Fengu 36 milljóna styrk Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 26. september 2014 11:28 Baldur Þórhallsson, prófessor við Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands, er einn þeirra sem vinna að verkefninu fyrir hönd Háskóla Íslands.
Rannsóknasetur um smáríki við Háskóla Íslands hlaut nýverið styrk úr nýrri menntaáætlun Evrópusambandsins, Erasmus+. Styrkurinn hljóðar upp á samtals 36 milljónir íslenskra króna að því er kemur fram í tilkynningu frá Alþjóðamálastofnun. Um er að ræða tveggja ára stefnumiðað samstarfsverkefni á háskólastigi. Háskóli Íslands leiðir verkefnið en fimm aðrir háskólar taka þátt í því: Kaupmannahafnarháskóli, Háskólinn í St. Andrews í Skotlandi, Háskólinn í Vilnius, Háskólinn í Tallinn og Háskólinn á Möltu. Rannsóknasetur um smáríki heyrir undir Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands. Pia Hansson forstöðumaður Rannsóknaseturs um smáríki, Jón Gunnar Ólafsson, verkefnisstjóri hjá Rannsóknasetri um smáríki og Baldur Þórhallsson, prófessor við Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands, þróuðu verkefnið og vinna að því fyrir hönd Háskóla Íslands í samvinnu við fræðimenn í háskólunum fimm. Fyrsti vinnufundur var haldinn í Kaupmannahafnarháskóla föstudaginn 19. september. Á næstu tveimur árum munu skólarnir sex vinna að því að þróa nánara samstarf á sviði smáríkjafræða. Fjármunir verða nýttir til að halda sumarskóla, ráðstefnur, standa að stúdentaskiptum og þróa samstarf í kennslu. Erasmus+ styrkurinn er mikil viðurkenning á starfi smáríkjasetursins sem hefur sérhæft sig í stöðu smáríkja í Evrópu. Árið 2013 hlaut setrið öndvegissetursstyrk frá menntaáætlun Evrópusambandsins og starfar nú sem Jean Monnet Centre of Excellence. Stofnun öndvegissetursins var framhald á fyrri viðurkenningum sem setrið hefur hlotið en þar má helst telja styrkveitingar til reksturs sumarskóla um smáríki síðastliðin tólf ár og styrki til kennsluþróunar í Evrópufræðum, í samstarfi við Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands.
Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Tvær þyrlur sendar og hópslysaáætlun virkjuð vegna alvarlegs slyss Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Erlent Gul viðvörun eftir stóra skriðu Innlent Fleiri fréttir Hópslysaáætlun virkjuð vegna áreksturs Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Sjá meira