Inntökupróf í lagadeild HÍ: Ekki hægt að falla Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 13. júní 2014 12:26 Eyvindur G. Gunnarsson, forseti lagadeildar Háskóla Íslands. Vísir/VAlli
Í kringum eitt hundrað tilvonandi nemendur í lagadeild Háskóla Íslands þreyta nú inntökupróf í deildina. Í kringum eitt hundrað tilvonandi nemendur í lagadeild Háskóla Íslands mættu í fyrsta inntökupróf deildarinnar sem hófst klukkan níu í Menntaskólanum við Hamrahlíð í morgun. Fjöldinn er nokkuð minni en forseti lagadeildar reiknaði með en gert hafði verið ráð fyrir plássi fyrir 150 nemendur. Því er ljóst að jafnvel þótt nemendum gangi illa á prófinu í dag eiga þeir sæti víst í lagadeildinni. „Markmiðinu um að fækka nemendum á fyrsta ári er náð,“ segir Eyvindur G. Gunnarsson, forseti lagadeildar, í samtali við Vísi. Hann segir 160-170 nemendur hafa skráð sig í prófið en umtalsvert færri mætt. Enginn kostnaður var við þátttöku þetta árið. Brottfall nemenda á fyrsta ári við lagadeild HÍ hefur verið gagnrýnt í gegnum tíðina. Fjöldi nemenda sem stenst ekki námskeiðið Almenn lögfræði hefur verið mikill. Eyvindur bendir á að gagnrýnin hafi meðal annars komið fram í ytri úttektarskýrslu. „Við vissum að prófið myndi fæla þá nemendur frá sem væru ekki fullkomlega einsettir á nám í lagadeildinni,“ segir Eyvindur en markmiðin með inntökuprófinu voru auk þess að auka gæði í kennslunni með smærri nemendahópum. Þá geti námið sömuleiðis allt farið fram inni á háskólasvæðinu. Eyvindur segir að inntökuprófið sé hluti af þriggja ára plani með ofangreind markmið í huga. Inntökuprófið sé í raun hluti af tvöfaldri síu þar sem Almenna lögfræðin sé áfram síðari sían. Nú standi hins vegar vonir til þess að fleiri nemendur standist námskeiðið. „Ef prófið gefur gott forspárgildi eru líkur á að hópurinn sem tekinn verður inn eftir tvö ár nái hvort sem er Almennu,“ segir Eyvindur.
Mest lesið Lýsa uppgötvuninni sem gríðarstórum „hvalakirkjugarði“ Erlent Ætlar ekki að sitja undir ásökunum um barnaníð Innlent Íranir draga orð Trump til baka og vara fólk við að taka hann trúanlegan Erlent Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Innlent Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Innlent Vill ekki ganga svo langt að kalla þetta klofning innan flokksins Innlent 107 fæddu heima og sjö án aðkomu heilbrigðisstarfsfólks Innlent Eldur í Árbænum Innlent Meirihluti bíður eftir greiningu í meira en ár Innlent Bretar samþykkja Wegovy pilluna fyrstir í Evrópu Erlent Fleiri fréttir Róbert leiðir vinnu hagræðingarhóps nýs meirihluta Meirihluti bíður eftir greiningu í meira en ár Malbika á Reykjanesbraut í kvöld 107 fæddu heima og sjö án aðkomu heilbrigðisstarfsfólks Ætlar ekki að sitja undir ásökunum um barnaníð Eldar í grillum og kveikt í ruslagámi Fara fram á að fjármálaáætlunin sé endurreiknuð Eldur í Árbænum Vill ekki ganga svo langt að kalla þetta klofning innan flokksins Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Eldfim staða, sorglegt áhugaleysi og ráðgáta Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Hafnar kreddum um verðbólguna Stefnir í uppbótartíma Starfsáætlun Alþingis kippt úr sambandi Tóku þátt í að uppræta rafmyntaþvætti sem teygði anga til Íslands Hótaði að beita skotvopni Finnur ekki fyrir sársauka Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa MDE vísar frá tveimur málum gegn Íslandi Flekahreyfingar innan Samfylkingar Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Ráðstöfun Baldurs til Eyja brjóti gegn samningi Samkeppniseftirlitið dragi upp skakka mynd af matvælaverðinu Brúin yfir Djúpafjörð boðin út Hermann Nökkvi verður aðstoðarmaður Vilhjálms Árnasonar Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Leggja til að mestu gljúfurkerfi landsgrunnsins verði vernduð „Ljóst að deilunni er ekki lokið“ Bein útsending: Funda um verðbólgu, verðlag og laun Sjá meira